Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Sálmarnir 4 - Biblían (2007)

1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2 Svara mér þegar ég hrópa, þú, Guð réttlætis míns. Þá er að mér þrengdi rýmkaðir þú um mig. Miskunna mér og heyr bæn mína.

3 Þér menn: Hve lengi hyggist þér veitast að sæmd minni, elska hégómann og leita til lyginnar? (Sela)

4 Vitið að Drottinn er náðugur þeim sem honum er trúr, Drottinn heyrir er ég hrópa til hans.

5 Skelfist en syndgið ekki, hugleiðið þetta í hvílum yðar og verið hljóðir. (Sela)

6 Færið réttar fórnir og treystið Drottni.

7 Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ Drottinn, lát ljós auglitis þíns lýsa yfir oss.

8 Þú hefur glatt hjarta mitt meira en aðrir gleðjast yfir gnægð korns og víns.

9 Í friði leggst ég til hvíldar og sofna því að þú einn, Drottinn, lætur mig hvíla óhultan í náðum.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ