Sálmarnir 2 - Biblían (2007)1 Hví gera þjóðirnar samsæri, hví hyggja þær á fánýt ráð? 2 Konungar jarðar rísa upp, höfðingjar ráða ráðum sínum gegn Drottni og hans smurða: 3 „Vér skulum slíta fjötra þeirra og varpa af oss viðjum þeirra.“ 4 Hann, sem situr á himni, hlær, Drottinn gerir gys að þeim. 5 Hann talar til þeirra í reiði sinni og skelfir þá í bræði sinni: 6 „Konung minn hef ég krýnt á Síon, mínu heilaga fjalli.“ 7 Ég vil kunngjöra úrskurð Drottins, hann sagði við mig: „Þú ert sonur minn, í dag hef ég fætt þig. 8 Bið þú mig, og ég gef þér þjóðir að erfðum og víða veröld til eignar: 9 Þú skalt mola þær með járnstaf, mylja þær eins og leirker.“ 10 Verið því hyggnir, þér konungar, látið yður segjast, höfðingjar þjóða. 11 Þjónið Drottni með lotningu, kyssið fætur hans titrandi 12 til að firra yður reiði hans svo að þér farist ekki á veginum 13 því að skjótt blossar upp reiði hans. Sæll er sá er leitar hælis hjá honum. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society