Sakaría 3 - Biblían (2007)Fjórða sýn: Jósúa æðsti prestur 1 Þessu næst lét hann mig sjá Jósúa æðsta prest. Hann stóð frammi fyrir engli Drottins en á hægri hönd honum Satan til að flytja kæru sína gegn honum. 2 En Drottinn mælti til Satans: „Drottinn ávíti þig, ákærandi. Er þessi maður ekki sem brandur úr báli dreginn?“ 3 En Jósúa var í óhreinum klæðum þar sem hann stóð andspænis englinum. 4 Engillinn tók þá til máls og sagði við þá sem stóðu frammi fyrir honum: „Færið hann úr þessum óhreinu klæðum.“ Síðan sagði hann við Jósúa: „Sjá, ég nem burt sök þína og læt færa þig í skrúða.“ 5 Og hann sagði: „Látið hreina ennisspöng á höfuð hans.“ Þeir létu þá hreina ennisspöng á höfuð hans og færðu hann í skrúðann. Og engill Drottins stóð hjá. 6 Og engill Drottins ávarpaði Jósúa með þessum orðum: 7 Svo segir Drottinn allsherjar: Ef þú gengur á mínum vegum og heldur boðorð mín skaltu einnig stjórna húsi mínu og gæta forgarða þess og ég heimila þér að samneyta þessum þjónum mínum. 8 Hlýddu á, Jósúa æðsti prestur, þú og félagar þínir, sem sitja andspænis þér, þeir eru tákn þess að ég mun láta Sprota, þjón minn, koma 9 því að hér er steinninn sem ég set fram fyrir Jósúa, einn steinn og á honum sjö augu. Ég gref á hann letrið, segir Drottinn allsherjar, og á einum degi nem ég burt sök þessa lands. 10 Á þeim degi, segir Drottinn allsherjar, mun hver maður bjóða granna sínum undir vínvið sinn og fíkjutré. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society