Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Prédikarinn 7 - Biblían (2007)


Spekiorð

1 Betra er gott mannorð en góð ilmsmyrsl og betri er dauðadagur en fæðingardagur.

2 Betra er að ganga í sorgarhús en að ganga í veislusal því að það eru endalok sérhvers manns og sá sem lifir hugfestir það.

3 Betri er hryggð en hlátur því að þegar andlitið er dapurt líður hjartanu vel.

4 Hjarta spekinganna er í sorgarhúsi en hjarta heimskingjanna í gleðihúsi.

5 Betra er að hlýða á ávítur viturs manns en á lofsöng heimskra manna.

6 Hlátur heimskingjans er eins og þegar snarkar í hrísi undir potti. Einnig það er hégómi.

7 Kúgun gerir vitran mann að heimskingja og mútur spilla hjartanu.

8 Betri er endir máls en upphaf, betri er þolinmóður maður en þóttafullur.

9 Vertu ekki auðreittur til reiði því að gremja hvílir í brjósti heimskra manna.

10 Segðu ekki: Hvernig stendur á því að hinir fyrri dagar voru betri en þessir? Ekki er það skynsamlegt að þú spyrjir svo.

11 Speki er eins góð og óðal og ávinningur fyrir þá sem sólina líta.

12 Því að spekin veitir forsælu eins og silfrið veitir forsælu en yfirburðir þekkingarinnar eru þeir að spekin heldur lífinu í þeim sem hana á.

13 Skoða þú verk Guðs. Hver getur gert það beint sem hann hefur gert bogið?

14 Vertu í góðu skapi á góðum degi og hugleiddu þetta á illum degi: Guð hefur gert þennan dag alveg eins og hinn til þess að maðurinn verði einskis vísari um það sem síðar kemur.


Ver ekki of réttlátur

15 Allt hef ég séð á minni fánýtu ævi: Margur réttlátur maður ferst í réttlæti sínu og margur guðlaus maður lifir lengi í illsku sinni.

16 Vertu ekki um of réttlátur og stærðu þig ekki af speki, hví vilt þú tortíma sjálfum þér?

17 Breyttu ekki of óguðlega og vertu ekki heimskur, hví vilt þú deyja áður en þinn tími er kominn?

18 Það er gott að þú haldir fast við þetta en sleppir þó ekki hendinni af hinu því að sá sem óttast Guð kemst hjá því öllu.

19 Spekin veitir vitrum manni meiri mátt en tíu valdhafar sem eru í borginni.

20 Enginn réttlátur maður er til á jörðinni sem gert hefur gott eitt og aldrei syndgað.

21 Gefðu ekki heldur gaum öllum þeim orðum sem töluð eru, til þess að þú heyrir ekki þræl þinn bölva þér.

22 Sjálfur veistu að þú hefur einnig oft bölvað öðrum.

23 Allt þetta hef ég rannsakað með speki. Ég hugsaði: Ég vil verða vitur en hyggindin eru hulin.

24 Fjarlægt er það sem er og djúpt, já djúpt. Hver getur fundið það?

25 Ég sneri mér og einbeitti mér að því að þekkja og rannsaka og leita visku og hygginda og að gera mér ljóst að guðleysi er heimska og heimska vitleysa.

26 Og ég fann að konan er biturri en dauðinn því að hún er net og hjarta hennar snara, hendur hennar fjötrar. Sá sem Guði þóknast kemst undan henni en syndarinn verður fanginn af henni.

27 Sjá, þetta hef ég fundið, segir prédikarinn, með því að leggja eitt við annað til þess að komast að hyggindum.

28 Það sem ég hef leitað að án afláts en ekki fundið, það er þetta: Einn mann af þúsundi hef ég fundið en konu hef ég aldrei fundið á meðal allra þeirra.

29 Sjá, þetta eitt hef ég fundið, að Guð hefur skapað mennina rétt en vangaveltur þeirra urðu of margar.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ