Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 9 - Biblían (2007)


Speki og heimska

1 Spekin hefur reist sér hús og höggvið til sjö stólpa sína.

2 Hún hefur slátrað sláturfé sínu, blandað vín sitt og búið borð sitt.

3 Hún hefur sent út þernur sínar, hún kallar af hæðunum í borginni:

4 „Hver sem óreyndur er komi hingað.“ Og við hinn fávísa segir hún:

5 „Komið, etið mat minn og drekkið vínið sem ég hef blandað.

6 Látið af flónsku, þá munuð þér lifa, gangið á braut skynseminnar.“

7 Sá sem átelur háðskan mann verður aðhlátursefni og sá sem ávítar hinn rangláta verður hafður að háði.

8 Ávítaðu ekki hinn háðska svo að hann hati þig ekki, ávítaðu hinn vitra og hann mun elska þig.

9 Gefðu hinum vitra, þá verður hann að vitrari, fræddu hinn réttláta og hann mun auka lærdóm sinn.

10 Að óttast Drottin er upphaf spekinnar og að þekkja Hinn heilaga er hyggindi.

11 Með mínu fulltingi verða dagar þínir margir og árum lífs þíns fjölgar.

12 Sértu vitur verður vitið þér til góðs en sértu spottari þá mun það bitna á þér einum.

13 Heimskan er eirðarlaus, léttúðug og veit ekkert.

14 Hún situr við dyr sínar, býr sér sess á hæðum borgarinnar

15 til þess að kalla á þá sem fara hjá, þá sem stefna fram á leið sinni:

16 „Hver sem óreyndur er komi hingað.“ Og við hinn fávísa segir hún:

17 „Stolið vatn er sætt og lostætt er launetið brauð.“

18 Og hann veit ekki að þar eru heimkynni hinna dauðu, að gestir hennar hafna í djúpum heljar.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ