Orðskviðirnir 8 - Biblían (2007)Spekin tekur til máls 1 Heyr, spekin kallar. Viskan hefur upp raust sína. 2 Uppi á hæðunum, við veginn og við krossgöturnar stendur hún, 3 við hliðin út úr borginni, þar sem gengið er inn, kallar hún hástöfum: 4 Til yðar tala ég, menn, og rödd minni er beint til mannanna barna. 5 Þér óreyndu, lærið hyggindi, og þér heimskingjar, lærið skynsemi. 6 Hlýðið á því að ég boða það sem mikilvægt er og varir mínar tjá það sem rétt er. 7 Sannleikur kemur af munni mínum og lygi er viðbjóður vörum mínum. 8 Réttvísi boða öll orð munns míns, í þeim er hvorki fals né fláræði. 9 Öll eru þau auðskilin hinum skilningsríka og augljós þeim sem hlotið hefur þekkingu. 10 Þiggið leiðsögn mína fremur en silfur og fræðslu mína fremur en skíragull. 11 Viska er betri en perlur, engir fjársjóðir jafnast á við hana. 12 Ég, spekin, dvelst hjá viskunni, hjá mér býr dómgreind og þekking. 13 Að óttast Drottin er að hata hið illa, hroka og dramb, meinfýsi og ósannsögli hata ég. 14 Ráð veiti ég og velgengni, hjá mér er hyggnin og minn er mátturinn. 15 Vegna mín halda konungar völdum og valdhafar úrskurða það sem rétt er. 16 Vegna mín stjórna menn og hljóta mannaforráð, allir valdsmenn veraldar. 17 Ég elska þá sem mig elska og þeir finna mig sem leita mín. 18 Auður og sæmd eru hjá mér, varanlegir sjóðir og velgengni. 19 Ávextir mínir eru betri en gull og gimsteinar og afrakstur minn betri en hreint silfur. 20 Ég geng á götu réttlætisins og stigum réttsýninnar. 21 Ég færi þeim sanna auðlegð sem elska mig og fylli sjóði þeirra. 22 Drottinn skapaði mig í upphafi, á undan öðrum verkum sínum, í árdaga. 23 Fyrir óralöngu var ég mynduð, í upphafi, áður en jörðin varð til. 24 Ég fæddist áður en hafdjúpin urðu til, þegar engar vatnslindir voru til. 25 Áður en fjöllunum var hleypt niður, á undan hæðunum fæddist ég, 26 áður en hann skapaði lönd og akra og fyrstu moldarköggla jarðar. 27 Þegar hann þandi út himininn var ég þar, þegar hann steypti hvelfingunni yfir hafdjúpin, 28 þegar hann festi upp skýin af mætti sínum og lét uppsprettur undirdjúpanna streyma fram, 29 þegar hann setti hafinu skorður til þess að vötnin staðnæmdust þar sem hann bauð, þegar hann ákvað grundvöll jarðarinnar, 30 þá var ég með í ráðum við hlið honum, var yndi hans dag hvern og lék mér fyrir augliti hans alla tíma, 31 ég lék mér í byggðum heimi hans og fagnaði með mannanna börnum. 32 Hlýðið mér, synir, því að sælir eru þeir sem halda sig á vegum mínum. 33 Hlustið á hvatningu mína, svo að þér verðið vitrir, og hafnið henni ekki. 34 Sæll er sá maður sem hlýðir á mig, kemur daglega að hliðum mínum og dvelst við dyr mínar. 35 Sá sem finnur mig finnur lífið og öðlast velþóknun Drottins. 36 Sá sem missir mín vinnur sjálfum sér mein. Þeir sem hata mig elska dauðann. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society