Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 6 - Biblían (2007)


Hagnýt ráð

1 Sonur minn, hafir þú gengið í ábyrgð fyrir náunga þinn, hafir þú átt handsal við framandi mann,

2 þá hefurðu bundið þig eigin orðum, látið fangast af orðum munns þíns.

3 Gerðu þá þetta, sonur minn, til að losa þig því að þú ert kominn á vald náunga þíns: Farðu í flýti og leggðu að náunga þínum.

4 Láttu þér hvorki koma dúr á auga né blundur á brá.

5 Losaðu þig eins og dádýr úr höndum hans, eins og fugl úr höndum fuglarans.

6 Farðu til maursins, letingi. Skoðaðu háttu hans og lærðu hyggindi.

7 Þótt hann hafi engan höfðingja, engan yfirboðara eða valdsherra,

8 þá aflar hann sér samt vista á sumrin og dregur saman fæðuna um uppskerutímann.

9 Hve lengi ætlar þú að hvílast, letingi? Hvenær ætlar þú að rísa af svefni?

10 Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendur til að hvílast ögn enn.

11 Þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi, skorturinn eins og vopnaður maður.

12 Varmennið, illmennið, talar tveimur tungum,

13 deplar augunum, gefur merki með fótunum og bendir fingrunum,

14 bruggar vélráð í hjarta sínu, áformar ódæði, kveikir illdeilur.

15 Því mun ógæfan steypast yfir hann, á augabragði kemur hrun hans og ekkert er til bjargar.

16 Sex hluti hatar Drottinn og sjö eru sálu hans andstyggð:

17 hrokafullt augnaráð, lygin tunga og hendur sem úthella saklausu blóði,

18 hjarta sem bruggar fjörráð, fætur sem fráir eru til illverka,

19 ljúgvottur sem sver meinsæri og sá sem kveikir illdeilur meðal bræðra.

20 Varðveittu, sonur minn, fyrirmæli föður þíns og hafnaðu ekki viðvörun móður þinnar.

21 Festu þau á hjarta þitt, bittu þau um háls þinn.

22 Þau leiða þig hvar sem þú ferð, þegar þú hvílist vaka þau yfir þér og þegar þú vaknar, þá tala þau til þín.

23 Því að fyrirmæli eru lampi og viðvörun ljós, og hvatning og handleiðsla leið til lífsins

24 því að þær varðveita þig fyrir vondri konu, fyrir hálli tungu framandi konu.

25 Girnstu ekki fegurð hennar í hjarta þínu og láttu hana ekki ginna þig með augnaráði sínu.

26 Því að skækja fæst fyrir einn brauðhleif en ótrú kona náunga þíns sækist eftir lífi þínu.

27 Getur nokkur borið glóð í klæðafaldi án þess að föt hans sviðni?

28 Getur nokkur gengið á glóðum án þess að svíða iljar sínar?

29 Svo fer þeim sem hefur mök við konu náunga síns, sá hlýtur refsingu sem hana snertir.

30 Enginn fyrirlítur þjófinn þegar hann stelur til að seðja hungur sitt.

31 Náist hann verður hann þó að greiða sjöfalt og láta frá sér allar eigur sínar.

32 Sá sem drýgir hór með giftri konu er vitstola, hann steypir sjálfum sér í glötun.

33 Högg og smán mun hann hljóta og vansæmd hans verður aldrei afmáð.

34 Eiginmaðurinn verður hamstola af reiði og hefnd hans verður vægðarlaus,

35 hann lítur ekki við neinum bótum og hafnar gjöfum þínum hversu ríkulegar sem þær eru.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ