Orðskviðirnir 4 - Biblían (2007)Ávinningur spekinnar 1 Heyrið, synir, áminningu föður yðar og hlustið á svo að þér öðlist skilning. 2 Góðan lærdóm veiti ég yður, hafnið ekki tilsögn minni. 3 Þegar ég var sonur í föðurhúsum, viðkvæmt einkabarn móður minnar, 4 þá kenndi faðir minn mér og sagði við mig: „Hjarta þitt haldi fast við orð mín, varðveittu fyrirmæli mín og þá muntu lifa. 5 Aflaðu þér visku, aflaðu þér hygginda. Gleymdu ekki orðum mínum og víktu ekki frá þeim. 6 Hafnaðu ekki viskunni, hún mun varðveita þig, elskaðu hana og þá mun hún vernda þig. 7 Viska er fyrir öllu, aflaðu þér visku, kostaðu öllu til að afla þér hygginda. 8 Hafðu hana í hávegum og þá mun hún hefja þig, faðmaðu hana og hún mun verða þér til sæmdar. 9 Hún mun setja unaðslegan sveig á höfuð þér og sæma þig glæstri kórónu.“ 10 Hlustaðu, sonur minn, og gefðu gaum að orðum mínum, þá verða æviár þín mörg. 11 Ég vísa þér veg spekinnar og leiði þig á braut ráðvendninnar, 12 á göngunni verður leið þín ekki þröng og hlaupirðu muntu ekki hrasa. 13 Varðveittu leiðsögnina og slepptu henni ekki, varðveittu hana því að hún er líf þitt. 14 Farðu ekki brautir ranglátra og gakktu ekki á vegi vondra manna. 15 Sneiddu hjá honum, farðu hann ekki, snúðu frá honum og farðu fram hjá. 16 Þeir geta ekki sofið nema þeir hafi gert illt og þeim kemur ekki dúr á auga nema þeir hafi fellt einhvern, 17 brauð glæpsins eta þeir og drekka vín ofbeldisins. 18 Gata réttlátra er eins og bjartur árdagsljómi, því bjartari sem nær líður hádegi. 19 Vegur ranglátra er eins og niðamyrkur, þeir vita ekki um hvað þeir hrasa. 20 Sonur minn, gefðu gaum að máli mínu, hneigðu eyra þitt að orðum mínum. 21 Láttu þau ekki víkja frá augum þínum, varðveittu þau innst í hjarta þínu 22 því að þau eru líf þeim sem hljóta þau og lækning öllum líkama þeirra. 23 Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru því að þar eru uppsprettur lífsins. 24 Haltu munni þínum fjarri fláum orðum og vörum þínum fjarri lygamálum. 25 Beindu augum þínum fram á við og sjónum þínum að því sem fram undan er. 26 Veldu fótum þínum beina braut, þá verður ætíð traust undir fótum. 27 Víktu hvorki til hægri né vinstri, haltu fæti þínum frá illu. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society