Orðskviðirnir 30 - Biblían (2007)Ýmsir orðskviðir 1 Orð Agúrs Jakesonar frá Massa, orð mannsins við Ítíel, Ítíel og Úkal: 2 Ég er heimskari en svo að geta talist maður, ég hef ekki mannsvit, 3 ég hef ekki lært speki og ekki hef ég þekkingu á Hinum heilaga. 4 Hver hefur stigið upp til himna og komið niður? Hver hefur safnað vindinum í greipar sínar? Hver hefur bundið vötnin í skikkju sína? Hver hefur ákvarðað endimörk jarðar? Hvað heitir hann og hvað heitir sonur hans, veist þú það? 5 Sérhvert orð Guðs er hreint, hann er skjöldur þeim er leita hælis hjá honum. 6 Bættu engu við orð hans til þess að hann ávíti þig ekki og geri þig beran að lygum. 7 Um tvennt bið ég þig, synjaðu mér þess ekki áður en ég dey: 8 Lát fals og lygi vera fjarri mér, gef mér hvorki fátækt né auðæfi en veit mér minn deildan verð. 9 Ég kynni annars að verða of saddur og afneita og segja: „Hver er Drottinn?“ Ef ég yrði fátækur kynni ég að stela og misbjóða nafni Guðs míns. 10 Rægðu ekki þjóninn við húsbónda hans svo að hann biðji þér ekki bölbæna og þú verðir að gjalda þess. 11 Til er það kyn sem bölvar föður sínum og blessar ekki móður sína, 12 kyn sem þykist vera hreint og hefur þó ekki þvegið af sér saurinn, 13 kyn sem er drembilátt og hnakkakerrt, 14 kyn sem hefur sverð að tönnum og hnífa að jöxlum til að uppræta hina fátæku úr landinu og hina snauðu meðal mannanna. 15 Blóðsugan á tvær dætur sem heita Gefðu! Gefðu! Þrennt er til sem er óseðjandi, fernt sem aldrei segir: „Það er nóg.“ 16 Helja og móðurlíf óbyrjunnar, jörðin sem aldrei seðst af vatni og eldurinn sem aldrei segir: „Nú er nóg.“ 17 Það auga, sem gerir gys að föður sínum og hafnar hlýðni við móður sína, munu hrafnarnir við lækinn kroppa úr og arnarungarnir eta. 18 Þrennt er það sem mér þykir undursamlegt og fernt sem ég fæ ekki skilið: 19 vegur arnarins um loftið, vegur höggormsins á klettinum, vegur skips á reginhafi og vegur karls að konu. 20 Þannig er atferli skækjunnar: Hún etur, þurrkar sér um munninn og segir: „Ég hef ekkert rangt gert.“ 21 Undan þrennu nötrar jörðin og undir fernu getur hún ekki risið: 22 undir þræli þegar hann verður konungur og ranglátum þegar hann mettast brauði, 23 undir forsmáðri konu þegar hún giftist og þernu þegar hún bolar burt húsmóður sinni. 24 Fjórir eru smáir á jörðinni og þó eru þeir vitrastir vitringa: 25 Maurarnir eru kraftlítil þjóð og þó afla þeir sér forða á sumrin. 26 Stökkhérarnir eru þróttlítil þjóð og þó gera þeir sér híbýli í klettunum. 27 Engispretturnar hafa engan konung og þó fer allur hópurinn út í röð og reglu. 28 Eðluna getur þú gripið með hendinni og þó er hún í konungahöllum. 29 Þrír eru tígulegir á velli og fjórir tígulegir í gangi: 30 ljónið sem er máttugast meðal dýranna og hopar ekki fyrir neinni skepnu, 31 haninn sem reigir sig, hafurinn og konungur sem enginn fær í móti staðist. 32 Hafir þú glapist til að upphefja sjálfan þig eða hafir þú gert það af ásettu ráði, leggðu þá höndina á munninn. 33 Sé mjólk strokkuð myndast smjör, sé slegið á nasir blæðir, sé egnt til reiði vakna deilur. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society