Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 3 - Biblían (2007)


Leiðin til spekinnar

1 Sonur minn, gleymdu ekki kenningu minni og hjarta þitt varðveiti ráð mín

2 því að langa lífdaga, farsæl ár og velgengni munu þau veita þér ríkulega.

3 Kærleikur og tryggð munu aldrei yfirgefa þig. Festu þau um háls þér og ritaðu þau á spjald hjarta þíns,

4 þá muntu hljóta hylli og góð hyggindi, jafnt í augum Guðs sem manna.

5 Treystu Drottni af öllu hjarta en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.

6 Minnstu hans á öllum vegum þínum, þá mun hann gera leiðir þínar greiðar.

7 Þú skalt ekki þykjast vitur en óttast Drottin og forðast illt,

8 það er heilnæmt líkama þínum og hressing beinum þínum.

9 Tignaðu Drottin með eigum þínum og með frumgróða allrar uppskeru þinnar,

10 þá verða hlöður þínar fullar og vínberjalögurinn mun flóa úr vínþróm þínum.

11 Sonur minn, hafnaðu ekki leiðsögn Drottins og láttu þér ekki gremjast umvöndun hans.

12 Drottinn agar þann sem hann elskar og lætur þann son finna til sem hann hefur mætur á.

13 Sæll er sá maður sem öðlast speki, sá sem hlýtur hyggindi.

14 Því að betra er að afla sér hennar en silfurs og arðurinn af henni er betri en gull.

15 Hún er dýrmætari en perlur, allir dýrgripir þínir jafnast ekki á við hana.

16 Langir lífdagar eru í hægri hendi hennar, auður og sæmd í vinstri hendi hennar.

17 Vegir hennar eru yndislegir vegir og allar götur hennar liggja til velfarnaðar.

18 Hún er tré lífsins þeim sem höndla hana og sæll er hver sá er heldur fast í hana.

19 Drottinn grundvallaði jörðina með visku og kom himninum fyrir af speki.

20 Fyrir þekkingu hans mynduðust hafdjúpin og döggin drýpur úr skýjunum.

21 Sonur minn, varðveittu visku og gætni, láttu þær ekki víkja frá augum þínum,

22 þá verða þær sálu þinni til lífs og hálsi þínum til prýði.

23 Þá muntu ganga veg þinn óhultur og ekki hrasa.

24 Þegar þú leggst til hvíldar þarftu ekki að hræðast og sofnir þú verður svefninn vær.

25 Þú þarft hvorki að kvíða felmtrinu né eyðingu hinna ranglátu þegar hún dynur yfir

26 því að Drottinn verður athvarf þitt og varðveitir fót þinn svo að hann verði ekki fanginn.

27 Synjaðu ekki góðs þeim sem þarfnast ef það er á þínu valdi að veita það.

28 Segðu ekki við náunga þinn: „Farðu og komdu aftur. Á morgun skal ég gefa þér,“ ef þú átt það til.

29 Bruggaðu ekki vélræði gegn náunga þínum meðan hann dvelst öruggur hjá þér.

30 Deildu ekki við neinn að ástæðulausu hafi hann ekki gert neitt á hlut þinn.

31 Öfundaðu ekki ofbeldismanninn og sækstu ekki eftir neinum verkum hans.

32 Því að andstyggð er sá Drottni sem afvega fer en ráðvandir menn eru alúðarvinir hans.

33 Bölvun Drottins er yfir húsi hins rangláta en bústað réttlátra blessar hann.

34 Háðska menn hæðir hann en hógværum veitir hann náð.

35 Vitrir menn hljóta heiður en heimskingjar bera smán úr býtum.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ