Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 29 - Biblían (2007)

1 Þeim sem oft hefur verið átalinn en þrjóskast við verður skyndilega hrundið og engin lækning fæst.

2 Þegar réttlátum vex máttur gleðst þjóðin en þegar ranglátir drottna stynur þjóðin.

3 Sá sem elskar visku gleður föður sinn en sá sem leggur lag sitt við skækjur glatar eigum sínum.

4 Konungurinn eflir landið með rétti en þungar álögur eyða það.

5 Smjaðri maður fyrir náunga sínum leggur hann net fyrir fætur hans.

6 Í misgjörð vonds manns er honum búin snara en réttlátur maður fagnar og gleðst.

7 Réttlátur maður kynnir sér málefni hinna lágt settu en ranglátur maður hirðir ekki um að kynna sér þau.

8 Spottarar æsa upp borgina en vitrir menn lægja reiðina.

9 Þegar vitur maður á í þrætu við afglapa reiðist og hlær afglapinn en lausn fæst engin.

10 Blóðvargarnir hata hinn ráðvanda en réttvísir menn láta sér annt um líf hans.

11 Heimskinginn eys út allri reiði sinni en vitur maður hefur stjórn á henni.

12 Þegar valdhafinn hlýðir á lygaorð verða allir þjónar hans sekir.

13 Fátæklingurinn og kúgarinn mætast, Drottinn ljær ljós augum beggja.

14 Dæmi konungur hina lágt settu af réttvísi mun hásæti hans standa stöðugt að eilífu.

15 Vöndur og umvöndun veita speki en agalaus sveinn gerir móður sinni skömm.

16 Þegar ranglátum fjölgar, fjölgar og misgjörðum en réttlátir munu horfa á fall þeirra.

17 Agaðu son þinn, þá mun hann láta þig hafa ró og veita sál þinni unað.

18 Þar sem engar vitranir eru týnir fólk áttum en sá sem varðveitir lögmálið er sæll.

19 Þræll verður ekki agaður með orðum, hann skilur þau að vísu en fer ekki eftir þeim.

20 Sjáir þú mann sem er fljótfær í orðum, þá á heimskinginn meiri von en hann.

21 Dekri maður við þræl sinn frá barnæsku verður hann vanþakklátur að lokum.

22 Reiðigjarn maður vekur deilur og skapbráður maður drýgir marga synd.

23 Hroki mannsins lægir hann en sæmd bíður hins hógværa.

24 Þjófsnauturinn hatast við sjálfan sig, hann hlýðir á bölvunina en lætur þó ekkert uppi.

25 Ótti við menn leiðir í snöru en þeim er borgið sem treystir Drottni.

26 Margir leita hylli valdhafans en réttur mannsins kemur frá Drottni.

27 Andstyggð réttlátra er sá sem ranglæti fremur og andstyggð ranglátra sá sem breytir ráðvandlega.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ