Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 28 - Biblían (2007)

1 Hinir ranglátu flýja þótt enginn elti þá en hinir réttlátu eru óttalausir eins og ungt ljón.

2 Þegar uppreisn verður í landinu gerast þar margir höfðingjar en meðal skynsamra og hygginna manna mun góð skipan lengi standa.

3 Maður sem er fátækur og situr á hlut snauðra er eins og steypiregn sem spillir uppskeru.

4 Þeir sem hafna fræðslu hrósa ranglátum en þeir sem fræðsluna þiggja berjast gegn þeim.

5 Illmenni skilja ekki hvað rétt er en þeir sem leita Drottins skilja allt.

6 Betri er fátækur maður og ráðvandur en ríkur maður og undirförull.

7 Sá sem varðveitir kenninguna er hygginn sonur en sá sem leggur lag sitt við óhófsmenn gerir föður sínum smán.

8 Sá sem eykur auð sinn með fjárleigu og vöxtum safnar honum handa þeim sem líknar fátækum.

9 Daufheyrist maður við lögmálinu verður bæn hans andstyggð.

10 Sá sem tælir heiðarlega menn á glapstigu fellur sjálfur í gröf sína en ráðvöndum mun vel farnast.

11 Ríkur maður þykist vitur en snauður maður og hygginn sér við honum.

12 Þegar hinir réttlátu fagna er mikið um dýrðir en þegar vegur ranglátra vex forða menn sér.

13 Sá sem dylur yfirsjónir sínar verður ekki lánsamur en sá sem játar þær og lætur af þeim hlýtur miskunn.

14 Sæll er sá maður sem ávallt er var um sig en sá sem herðir hjarta sitt fellur í ógæfu.

15 Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn, svo er ranglátur drottnari yfir magnlítilli þjóð.

16 Skilningssljór höfðingi er harður kúgari en langlífur verður sá sem hatar rangfenginn auð.

17 Sá maður, sem blóðsök hvílir á, er á flótta fram á grafarbakkann, enginn aðstoði hann.

18 Sá sem breytir ráðvandlega mun frelsast en sá fellur í gryfju sem beitir undirferli.

19 Sá sem yrkir land sitt mettast af brauði en sá sem sækist eftir hégóma mettast af fátækt.

20 Áreiðanlegur maður blessast ríkulega en sá sem fljótt vill verða ríkur sleppur ekki við refsingu.

21 Hlutdrægni er röng en þó fremja menn ranglæti fyrir einn brauðbita.

22 Nískur maður er á þönum eftir auði og veit ekki að örbirgðin mun elta hann uppi.

23 Sá sem ávítar mann öðlast síðar meiri hylli en tungumjúkur smjaðrari.

24 Sá sem rænir foreldra sína og segir: „Það er engin synd,“ er lagsbróðir eyðandans.

25 Ágjarn maður vekur deilur en þeim sem treystir Drottni farnast vel.

26 Sá sem treystir á eigið hyggjuvit er heimskingi en sá sem breytir viturlega mun bjargast.

27 Sá sem gefur fátækum líður engan skort en þeim sem byrgir augu sín verður víða formælt.

28 Þegar vegur ranglátra vex fela menn sig en þegar þeir tortímast fjölgar réttlátum.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ