Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 27 - Biblían (2007)

1 Hælstu ekki um af morgundeginum því að þú veist ekki hvað dagurinn ber í skauti sínu.

2 Láttu aðra hrósa þér, ekki þinn eigin munn, annarra varir, ekki þínar eigin.

3 Steinar eru þungir og sandurinn sígur í en gremja afglapans er þyngri en hvort tveggja.

4 Heiftin er grimm og reiðin er svæsin en hver fær staðist öfundina?

5 Betri eru átölur í hreinskilni en ást sem leynt er.

6 Vel meint eru vinar sárin en viðbjóðslegir fjandmanns kossar.

7 Saddur maður treður hunang undir fótum en hungruðum manni er remman sæt.

8 Eins og fugl, floginn úr hreiðri, svo er maður sem flúinn er af heimili sínu.

9 Ilmolía og reykelsi gleðja hjartað en indælli er vinur en ilmandi viður.

10 Yfirgefðu ekki vin þinn né vin föður þíns og gakktu ekki í hús bróður þíns á óheilladegi þínum. Betri er granni í grennd en bróðir í fjarska.

11 Öðlastu visku, sonur minn, og gleddu hjarta mitt svo að ég geti svarað þeim orði sem smána mig.

12 Vitur maður sér ógæfuna og felur sig en einfeldningar halda áfram og gjalda þess.

13 Taktu skikkjuna af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, taktu veð af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir framandi konu.

14 Blessi maður náunga sinn snemma morguns með háreysti skal það metið sem formæling.

15 Sífelldur þakleki í rigningatíð og þrasgjörn kona er hvað öðru líkt,

16 sá er hana stöðvar stöðvar vindinn og heldur á olíu í hægri hendi.

17 Járn brýnir járn og maður brýnir mann.

18 Sá sem gætir fíkjutrés mun njóta ávaxtar þess og sá sem annast húsbónda sinn hlýtur sæmd.

19 Andlit horfir við andliti í vatni, svo er hjarta eins manns gagnvart öðrum.

20 Dánarheimar og undirdjúpin eru óseðjandi, svo eru og augu mannsins óseðjandi.

21 Deiglan reynir silfrið og bræðsluofninn gullið en maðurinn er metinn eftir orðstír sínum.

22 Þótt þú steytir heimskingjann í mortéli ásamt korni mun heimska hans ekki skilja við hann.

23 Gefðu nákvæmar gætur að sauðum þínum og annast um hjarðir þínar

24 því að hvorki vara eignir að eilífu né kóróna frá kyni til kyns.

25 Sé heyið hirt og háin tekin að spretta og hafi jurtum fjallanna verið safnað

26 átt þú lömb þér til klæðnaðar, geithafra til þess að kaupa fyrir akur

27 og nóga geitamjólk þér til fæðslu, heimili þínu til matar og til viðurværis þernum þínum.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ