Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 26 - Biblían (2007)

1 Eins og snjór um sumar eða regn um uppskeru, svo illa á sæmd við heimskan mann.

2 Eins og spörfugl hlýtur að flögra og svala að fljúga, eins er um óverðskuldaða formælingu, hún verður ekki að áhrínsorðum.

3 Svipan hæfir hestinum og taumurinn asnanum en vöndurinn baki heimskingjans.

4 Svaraðu ekki heimskingjanum eftir fíflsku hans svo að þú verðir ekki honum jafn.

5 Svaraðu heimskingjanum eftir fíflsku hans, annars heldur hann að hann sé vitur.

6 Sá fórnar fótum sínum og fær að súpa á ranglæti sem sendir orð með heimskingja.

7 Eins og fótleggir hins lamaða hanga máttlausir, svo fer spakmælum í munni heimskingjanna.

8 Þeim sem sýnir heimskum manni sæmd fer eins og þeim er hnýtir stein í slöngvu.

9 Eins og þyrnir stingst í hönd á drukknum manni, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.

10 Eins og skytta sem skýtur á alla vegfarendur, svo er sá sem ræður heimskingja eða vergangsmann til verka.

11 Eins og hundur sem snýr aftur til spýju sinnar, svo er heimskingi sem endurtekur fíflsku sína.

12 Sjáir þú mann sem telur sig vitran, þá á heimskinginn meiri von en hann.

13 Letinginn segir: „Óargadýr er úti fyrir, ljón á torgunum.“

14 Hurðin snýst á hjörunum og letinginn í hvílu sinni.

15 Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina en honum er um megn að bera hana upp að munninum.

16 Latur maður þykist vitrari en sjö sem veita viturleg ráð.

17 Sá sem blandar sér í annarra deilu er eins og sá sem grípur í eyrun á hundi sem fram hjá hleypur.

18 Eins og óður maður sem þeytir eldibröndum og örvum

19 er sá sem svíkur náunga sinn og segir síðan: „Ég var bara að gera að gamni mínu.“

20 Þegar eldsneytið þrýtur slokknar eldurinn og þegar enginn er rógberinn stöðvast deilurnar.

21 Eins og kol þarf til glóða og við til elds, eins þarf þrætugjarnan mann til að kveikja deilur.

22 Orð rógberans eru eins og sælgæti, þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans.

23 Sem sorasilfur utan af leirbroti, svo eru eldheitir kossar og illt hjarta.

24 Með vörum sínum gerir hatursmaðurinn sér upp vinalæti en í hjarta sínu hyggur hann á svik.

25 Þó að hann mæli fagurt, þá trúðu honum ekki því að sjö andstyggðir búa í hjarta hans.

26 Þótt hatrið hylji sig hræsni, þá verður illska þess opinber í söfnuðinum.

27 Sá sem grefur gröf fellur í hana og steinninn fellur aftur í fang þeim er veltir honum.

28 Lygin tunga hatar þá sem hún hefur unnið mein og smjaðuryrði leiða til glötunar.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ