Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 25 - Biblían (2007)

1 Þetta eru líka orðskviðir Salómons sem menn Hiskía Júdakonungs söfnuðu:

2 Guði er sæmd að dylja mál, konungum sæmd að útkljá mál.

3 Eins og hæð himins og dýpt jarðar, svo eru konungshjörtun órannsakanleg.

4 Sé sorinn tekinn úr silfrinu, þá fær smiðurinn ker úr því.

5 Séu hinir ranglátu teknir burt frá augliti konungsins, þá verður hásæti hans stöðugt í réttlæti.

6 Stærðu þig ekki frammi fyrir konunginum og ætlaðu þér ekki stað stórmenna

7 því að betra er að menn segi við þig: „Færðu þig hingað upp,“ en að menn niðurlægi þig frammi fyrir tignarmanni. Hvað sem augu þín kunna að hafa séð,

8 vertu þá ekki of hvatur í málavafstur því að hverjar verða lyktirnar ef náungi þinn gerir þér minnkun?

9 Verðu rétt þinn gegn náunga þínum en ljóstraðu ekki upp leyndarmálum annars manns

10 til þess að sá sem heyrir það átelji þig ekki og þú fáir á þig varanlegt óorð.

11 Gullepli í silfurskálum, svo eru vel valin orð.

12 Eins og gullhringur og skartgripur af skíru gulli, svo er áminning viturs manns sem hlýtt er á.

13 Eins og snjósvali um uppskerutímann, svo er áreiðanlegur sendiboði þeim sem sendir hann því að hann hressir sál húsbónda síns.

14 Ský og vindur en engin rigning, svo er sá sem hrósar sér af örlæti en gefur þó ekkert.

15 Með þolinmæði má telja höfðingja hughvarf, mjúk tunga mylur bein.

16 Finnir þú hunang, fáðu þér nægju þína svo að þú verðir ekki ofsaddur af því og spýir því upp.

17 Stígðu fæti þínum hóflega oft í hús náunga þíns svo að hann verði ekki leiður á þér og honum í nöp við þig.

18 Sleggja, sverð, hvöss ör, svo er sá sem ber falsvitni gegn náunga sínum.

19 Laus tönn og hrasandi fótur, slíkt er traust á svikara á degi neyðarinnar.

20 Að fara úr fötum í kalsaveðri, að hella ediki í sár, eins er að syngja sorgmæddum gleðisöngva.

21 Ef óvin þinn hungrar, gefðu honum þá að eta og þyrsti hann, gefðu honum þá að drekka

22 því að þú safnar glóðum elds að höfði honum og Drottinn mun endurgjalda þér það.

23 Norðanvindurinn ber með sér regn og launskraf reiðileg andlit.

24 Betri er dvöl í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu.

25 Eins og kalt vatn í skrælnaða kverk, svo er heillafregn úr fjarlægu landi.

26 Eins og grugguð lind og skemmdur brunnur, svo er réttlátur maður er lætur undan vondum manni.

27 Of mikið hunangsát er ekki gott, vertu því spar á hólið.

28 Eins og opin borg án borgarmúra, svo er sá maður sem ekki hefur stjórn á skapi sínu.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ