Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 23 - Biblían (2007)

1 Þegar þú situr til borðs með valdhafa, gættu þess þá vel hvern þú hefur fyrir framan þig

2 og settu hníf við barka þér sértu gráðugur.

3 Láttu þig ekki langa í kræsingar hans því að þær eru hverful fæða.

4 Leitastu ekki við að verða ríkur, hafðu vit á að gera það ekki.

5 Beinir þú augum þínum til auðsins er hann horfinn. Hann á sér vængi sem örn og hverfur til himins.

6 Matastu ekki hjá nískum manni og láttu þig ekki langa í kræsingar hans.

7 Hann er eins og maður sem telur eftir. „Et og drekk,“ segir hann við þig en hugur fylgir ekki máli.

8 Bitanum, sem þú kyngdir, verður þú að spýta upp aftur og fagurgalanum hefur þú sólundað.

9 Talaðu ekki fyrir eyrum heimskingjans því að hann fyrirlítur skynsemisorð þín.

10 Færðu ekki úr stað landamerki ekkjunnar og gakktu ekki inn á akra munaðarleysingjanna

11 því að lausnari þeirra er máttugur, hann mun flytja mál þeirra gegn þér.

12 Snúðu hjarta þínu að umvönduninni og eyrum þínum að orðum viskunnar.

13 Sparaðu ekki aga við hinn unga, ekki deyr hann þótt þú sláir hann með vendi.

14 Þú slærð hann með vendinum og frelsar líf hans frá helju.

15 Sonur minn, verði hjarta þitt viturt, þá gleðst ég líka í hjarta mínu

16 og nýru mín fagna þegar varir þínar mæla það sem rétt er.

17 Öfundaðu ekki syndara í hjarta þínu en guðhrædda menn ævinlega.

18 Þá áttu þér framtíð og von þín mun aldrei bregðast.

19 Hlustaðu, sonur minn, vertu vitur og beindu hjarta þínu á rétta leið.

20 Vertu ekki með drykkjurútum eða þeim sem háma í sig kjöt

21 því að drykkjumenn og mathákar verða snauðir og víman mun klæða þig í tötra.

22 Hlustaðu á föður þinn sem gat þig og fyrirlíttu ekki móður þína þegar hún verður gömul.

23 Kauptu sannleika, og seldu hann ekki, visku, fræðslu og skilning.

24 Faðir réttláts manns fagnar og sá sem gat vitran son gleðst yfir honum.

25 Faðir þinn og móðir gleðjist og fagni sú sem fæddi þig.

26 Sonur minn, gefðu mér hjarta þitt og láttu augu þín gaumgæfa vegu mína.

27 Skækja er djúp gröf og framandi kona þröngur pyttur.

28 Hún liggur í leyni eins og ræningi og fjölgar hinum ótrúu meðal mannanna.

29 Hver barmar sér? Hver veinar? Hver á í stælum? Hver kvartar? Hver fær sár að þarflausu? Hver rauð augu?

30 Þeir sem sitja við vín fram á nætur, þeir sem koma saman til að bergja á vínblöndu.

31 Horfðu ekki á vínið, hve rautt það er, hvernig það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður.

32 Að síðustu bítur það sem höggormur og spýtir eitri sem naðra.

33 Augu þín munu sjá kynlega hluti og munnur þinn mæla fáránleika.

34 Þú verður eins og sá sem liggur í úthafinu miðju, eins og sá er liggur efst uppi á siglutré.

35 „Þeir slógu mig, ég kenndi ekki til, þeir börðu mig, ég varð þess ekki var. Þegar ég vakna af víninu fæ ég mér meira.“

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ