Orðskviðirnir 22 - Biblían (2007)1 Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður, vinsældir eru betri en silfur og gull. 2 Ríkur og fátækur mætast en Drottinn skapaði báða. 3 Vitur maður sér ógæfuna og felur sig en einfeldningarnir halda áfram og gjalda þess. 4 Laun auðmýktar og ótta Drottins eru auður, sæmd og líf. 5 Þyrnar og snörur eru á vegi hinna fláráðu, sá sem annt er um líf sitt forðast þá. 6 Fræð hinn unga um veginn sem hann á að halda og á gamals aldri mun hann ekki af honum víkja. 7 Ríkur maður drottnar yfir fátækum og lánþeginn verður þræll lánardrottins síns. 8 Sá sem sáir ranglæti uppsker ógæfu, sproti heiftar hans verður að engu. 9 Hinn örláta munu menn blessa því að hann gefur hinum fátæka af brauði sínu. 10 Rektu spottarann burt, þá hverfur deilan og þá linnir þrætu og smán. 11 Sá sem ástundar hreinleika hjartans vinnur hylli konungs með geðfelldum orðum vara sinna. 12 Augu Drottins gæta viskunnar en orðum svikarans kollvarpar hann. 13 Letinginn segir: „Ljón er úti fyrir, ég verð drepinn fari ég út.“ 14 Djúp gröf er munnur framandi kvenna, sá sem verður fyrir reiði Drottins fellur í hana. 15 Setjist heimskan að í hjarta sveinsins, þá mun vöndur agans reka hana þaðan. 16 Að kúga fátækan sér til ávinnings er eins og að gefa ríkum manni; hvort tveggja verður til þess eins að gera mann snauðan. Orð hinna vitru 17 Hneig eyra þitt og hlusta á orð hinna vitru, veit fræðslu minni athygli. 18 Gott er að þú geymir þau í brjósti þér, að þau verði sífellt á vörum þér. 19 Til þess að traust þitt sé á Drottni fræði ég þig í dag, já, þig. 20 Hef ég ekki ritað þér þrjátíu sinnum heilræði og fræðslu 21 til þess að gera þér ljósan sannleika, sannleiksorð, svo að þú flytjir þeim áreiðanleg orð er senda þig? 22 Rændu ekki fátæklinginn af því að hann er fátækur og níðstu ekki á lítilmagnanum í borgarhliðinu 23 því að Drottinn mun flytja mál þeirra og ræna þá lífinu er þá ræna. 24 Leggðu ekki lag þitt við reiðigjarnan mann og eigðu ekki samneyti við hinn skapbráða 25 til þess að þú temjir þér ekki hegðun hans og leggir snörur fyrir líf þitt. 26 Vertu ekki einn af þeim sem ganga til handsala, þeim sem ganga í ábyrgð fyrir skuldum. 27 Þegar þú átt ekkert að greiða með, þá verður hvílan tekin undan þér. 28 Færðu ekki úr stað hin fornu landamerki sem forfeður þínir hafa sett. 29 Sjáir þú mann vel færan í verki sínu mun hann veita konungum þjónustu sína en ekki þjóna ótignum mönnum. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society