Orðskviðirnir 20 - Biblían (2007)1 Vínið er illkvittið, sterkur drykkur glaumsamur, fávís verður sá sem lætur leiðast afvega. 2 Reiði konungs er eins og ljónsöskur, sá sem egnir hann gegn sér hættir lífi sínu. 3 Það er manni sómi að forðast deilur en afglapinn kveikir þrætur. 4 Letinginn plægir ekki á réttum tíma, því leitar hann um uppskerutímann og grípur í tómt. 5 Ráð mannshjartans eru sem djúp vötn og hygginn maður eys af þeim. 6 Margir láta vingjarnlega en tryggan vin, hver finnur hann? 7 Réttlátur maður ástundar ráðvendni, sæl verða börn hans eftir hann. 8 Þegar konungur situr á dómstóli vinsar hann allt illt úr með augnaráðinu einu. 9 Hver getur sagt: „Ég hef haldið hjarta mínu hreinu, ég er hreinn af synd?“ 10 Tvenns konar vog og tvenns konar mál, hvort tveggja er Drottni andstyggð. 11 Jafnvel má þekkja af verkum barnsins hvort athafnir þess eru hreinar og einlægar. 12 Eyrað sem heyrir og augað sem sér, hvort tveggja hefur Drottinn skapað. 13 Elskaðu ekki svefninn svo að þú verðir ekki snauður, opnaðu augun, þá muntu mettast af brauði. 14 „Afleitt, afleitt,“ segir kaupandinn en þegar hann gengur burt hælist hann um. 15 Gnægð er af gulli og perlum en dýrmætastar eru þó vitrar varir. 16 Taktu skikkjuna af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, taktu veð af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir framandi. 17 Sætt er svikabrauðið en eftir á fyllist munnurinn möl. 18 Vel ráðin áform fá framgang, þiggðu hollráð ef þú heyr stríð. 19 Vesæll er sá sem ljóstrar upp leyndarmálum, hafðu ekki samneyti við málugan mann. 20 Formæli maður föður og móður mun lampi hans slokkna í náttmyrkrinu. 21 Eignir, sem í upphafi voru skjótfengnar, blessast ekki að lokum. 22 Segðu ekki: „Ég hefni hins illa.“ Treystu á Drottin og hann mun bjarga þér. 23 Tvenns konar lóð eru Drottni andstyggð og fölsuð vog er ekki góð. 24 Skref mannsins eru ákveðin af Drottni. Hvernig fær þá maðurinn skilið veg sinn? 25 Það er gildra að gefa helgigjöf í flýti og hyggja fyrst að eftir að heit eru unnin. 26 Vitur konungur vinsar hina ranglátu úr og lætur síðan þreskihjólið ganga yfir þá. 27 Andi mannsins er lampi Drottins og rannsakar hvern afkima hjarta hans. 28 Mildi og sannleikur vernda konunginn og hann styrkir hásæti sitt með réttlæti. 29 Þrek er ungs manns þokki en hærurnar prýði öldunganna. 30 Sár undan svipu hreinsa burt hið illa og högg sem taka djúpt í hold. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society