Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 2 - Biblían (2007)


Spekin, vörn gegn illu

1 Sonur minn, ef þú hlýðir orðum mínum og geymir boðorð mín hjá þér,

2 veitir spekinni athygli þína og hneigir hjarta þitt að hyggindum,

3 já, ef þú kallar á skynsemina og hrópar á hyggindin,

4 ef þú leitar að þeim eins og silfri og grefur eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum,

5 þá mun þér lærast að óttast Drottin og veitast þekking á Guði.

6 Drottinn veitir speki, af munni hans kemur þekking og hyggindi.

7 Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna og er skjöldur þeirra sem breyta grandvarlega

8 því að hann vakir yfir stígum réttlætisins og varðveitir veg sinna réttsýnu.

9 Þá skilur þú einnig hvað réttlæti er, réttur og réttsýni, skilur sérhverja braut hins góða.

10 Speki mun þá koma til hjarta þíns, og þekkingin verða sálu þinni til yndis.

11 Aðgætnin mun vernda þig og hyggindin varðveita þig

12 til þess að frelsa þig frá vegi hins illa, frá þeim mönnum sem fara með fals,

13 sem hverfa af leið einlægninnar og ganga á vegum myrkursins,

14 sem gamna sér við ódæði og fagna yfir illskuverkum,

15 sem fara hlykkjóttar leiðir og eru komnir á glapstigu í breytni sinni,

16 til að frelsa þig frá léttúðardrós og blíðmælgi hinnar framandi konu

17 sem hefur yfirgefið unnusta æsku sinnar og gleymt sáttmála Guðs síns,

18 húsi hennar hallar til dauðans og brautir hennar liggja niður til framliðinna,

19 þeir sem inn til hennar fara snúa ekki aftur og aldrei ná þeir aftur á lífsins stigu,

20 til þess að þú gangir á vegi góðra manna og haldir þig á leið réttlátra.

21 Hinir hreinlyndu munu byggja landið og hinir ráðvöndu verða þar áfram.

22 En hinir ranglátu verða upprættir úr landinu og hinum svikulu verður tortímt.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ