Orðskviðirnir 18 - Biblían (2007)1 Sérlyndur maður fer að eigin geðþótta og hafnar hverju hollráði. 2 Heimskinginn keppir ekki að hyggindum heldur að gera skoðanir sínar kunnar. 3 Komi illmennið kemur háðungin einnig og smáninni fylgir skömm. 4 Djúp vötn eru orð af manns munni, lind viskunnar er sem rennandi lækur. 5 Það er ekki rétt að draga taum hins rangláta og halla rétti hins saklausa í dómi. 6 Orð heimskingjans valda deilum, munnur hans býður höggunum heim. 7 Munnur heimskingjans verður honum að falli og varirnar eru lífi hans snara. 8 Sæt eru orð rógberans, þau ná til innstu fylgsna mannsins. 9 Kærulaus verkmaður er albróðir niðurrifsmannsins. 10 Nafn Drottins er sterkur turn, þangað hleypur hinn réttláti og er óhultur. 11 Auður ríks manns er honum öflugt vígi og ókleifur múrveggur að hans hyggju. 12 Dramb hjartans er undanfari falls, hógværð er undanfari sæmdar. 13 Svari einhver áður en hann hlustar er það heimska hans og skömm. 14 Kjarkur styrkir menn í sjúkleika en hver fær borið dapurt geð? 15 Hjarta hins hyggna aflar sér þekkingar og eyra hinna vitru leitar þekkingar. 16 Gjöf greiðir þeim veg sem gefur og leiðir hann fram fyrir stórmenni. 17 Sá er fyrst flytur mál sitt virðist hafa á réttu að standa uns andstæðingurinn vefengir rök hans. 18 Hlutkestið bindur enda á deilu og sker úr málum hinna voldugu. 19 Hlunnfarinn bróðir er sem rammbyggt virki, deilur sem slagbrandar fyrir hallardyrum. 20 Af ávexti munnsins mettast kviðurinn, uppskera varanna seður manninn. 21 Dauði og líf eru á valdi tungunnar, sá sem henni beitir mun og þiggja ávöxt hennar. 22 Sá sem eignast konu eignast gersemi og hlýtur náðargjöf frá Drottni. 23 Hinn fátæki biður í auðmýkt en hinn ríki svarar með hörku. 24 Til eru vinir sem bregðast og til er sá vinur sem reynist tryggari en bróðir. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society