Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 15 - Biblían (2007)

1 Mildilegt svar stöðvar bræði en fúkyrði vekja reiði.

2 Af tungu hinna vitru drýpur þekking, af munni heimskingjanna streymir flónskan.

3 Augu Drottins eru alls staðar og vaka yfir vondum og góðum.

4 Hógværð tungunnar er lífstré en fals hennar veldur hugarkvöl.

5 Afglapinn smáir leiðsögn föður síns en sá sem tekur umvöndun verður hygginn.

6 Í húsi hins réttláta er mikill auður en í gróða hins rangláta er óreiða.

7 Varir hinna vitru dreifa þekkingu en hjarta heimskingjanna fer villt vegar.

8 Fórn ranglátra er Drottni andstyggð en bæn réttsýnna er honum þóknanleg.

9 Vegur hins rangláta er Drottni andstyggilegur en þann sem ástundar réttlæti elskar hann.

10 Vægðarlaus hirting bíður þess sem hverfur af réttri leið, sá sem hatar umvöndun hlýtur að deyja.

11 Dánarheimur og undirdjúpin eru Drottni auðsæ, hve miklu fremur hjörtu mannanna.

12 Spottaranum hugnast ekki fortölur, til viturra manna leitar hann ekki.

13 Glatt hjarta gerir andlitið hýrlegt en sé hryggð í hjarta er hugurinn dapur.

14 Hjarta hins vitra leitar að þekkingu en heimskinginn gæðir sér á fíflsku.

15 Fátæklingurinn lítur aldrei glaðan dag en sá sem vel liggur á er sífellt í veislu.

16 Betra er að eiga lítið og óttast Drottin en mikinn fjársjóð með áhyggjum.

17 Betri er einn skammtur kálmetis með kærleika en alinaut með hatri.

18 Bráðlyndur maður vekur deilur en sá sem seinn er til reiði stillir þrætur.

19 Vegur letingjans er eins og þyrnigerði en gata trúmennskunnar sem rudd braut.

20 Vitur sonur gleður föður sinn en heimskinginn fyrirlítur móður sína.

21 Heimskingjanum er fíflskan gleði en skynsamur maður gengur beinar brautir.

22 Áform verða að engu þar sem engin er ráðagerðin en ef margir leggja á ráðin rætast þau.

23 Sá fagnar sem svara kann og fagurt er orð í tíma talað.

24 Leið lífsins liggur upp á við fyrir hinn hyggna til þess að hann lendi ekki niðri í helju.

25 Drottinn rífur niður hús hrokagikksins en setur föst landamerki ekkjunnar.

26 Ill áform eru Drottni andstyggð en hrein eru vingjarnleg orð.

27 Sá spillir heimilishögum sínum sem girnist rangfenginn gróða en sá lifir lengi sem hatar mútugjafir.

28 Hjarta hins réttláta íhugar hverju svara skuli en munnur ranglátra eys úr sér illsku.

29 Drottinn er fjarlægur ranglátum en bæn réttlátra heyrir hann.

30 Vingjarnlegt augnaráð gleður hjartað, góð frétt eykur holdi á bein.

31 Sá sem hlýðir á holla umvöndun mun búa meðal hinna vitru.

32 Sá sem hafnar leiðsögn lítilsvirðir sjálfan sig en sá sem hlýðir á umvöndun eykur skynsemi sína.

33 Að óttast Drottin er leiðsögn til visku, hógværð er undanfari sæmdar.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ