Orðskviðirnir 14 - Biblían (2007)1 Viska kvennanna reisir húsið en fíflska þeirra rífur það niður með berum höndum. 2 Sá sem breytir rétt óttast Drottin en sá sem fyrirlítur hann fer villur vegar. 3 Í munni heimskingjans býr vöndur gegn hroka hans en varir hinna vitru varðveita þá. 4 Þar sem engin naut eru, er jatan tóm en af krafti uxans fæst mikill ágóði. 5 Sannorður vottur lýgur ekki en falsvottur fer með lygar. 6 Spottarinn leitar visku en finnur ekki en hyggnum manni er hún auðfengin. 7 Haltu þig fjarri heimskum manni, engin viskuorð hlýtur þú af honum. 8 Viska hins hyggna er að þekkja réttan veg en fíflska heimskingjanna er blekking. 9 Heimskingja má sætta með meðalgöngu en hreinskilnum nægir góðvild. 10 Hjartað eitt þekkir kvöl sína og í gleði þess getur enginn annar blandað sér. 11 Hús ranglátra eyðist en tjald hreinskilinna blómgast. 12 Margur vegurinn virðist greiðfær en endar þó í helju. 13 Þótt hlegið sé kennir hjartað til, gleði kann að enda í trega. 14 Rangsnúið hjarta hlýtur sín málagjöld, svo og góður maður af verkum sínum. 15 Einfaldur maður trúir öllu en hygginn maður kann fótum sínum forráð. 16 Vitur maður óttast hið illa og forðast það en heimskinginn anar ugglaus áfram. 17 Uppstökkan mann henda glöp en hinn meinfýsni verður hataður. 18 Einfeldningarnir erfa fíflsku en vitrir menn krýnast þekkingu. 19 Hinir vondu verða að lúta hinum góðu og hinir ranglátu að standa fyrir dyrum réttlátra. 20 Fátæklingurinn verður jafnvel hvimleiður jafningja sínum en auðmaðurinn eignast fjölda vina. 21 Sá sem fyrirlítur vin sinn drýgir synd en lánsamur er sá sem sýnir nauðstöddum miskunn. 22 Vissulega villast þeir sem áforma illt en hinir góðviljuðu ávinna sér trausta vináttu. 23 Allt erfiði færir ágóða en fánýtt hjal leiðir til skorts. 24 Prýði hinna vitru er auður þeirra en fíflska heimskingjanna er og verður fíflska. 25 Sannorður vottur bjargar lífi en sá sem fer með lygar er svikari. 26 Að óttast Drottin veitir manni öryggi, börn hans munu eiga sér athvarf. 27 Að óttast Drottin er lífslind og forðar frá snörum dauðans. 28 Mannfjöldi er konungsprýði en mannfæð steypir höfðingjum. 29 Sá sem er seinn til reiði er skynsamur en hinn bráðláti setur heimskuna í hásæti. 30 Hugarró er líkamanum líf en öfund er eitur í beinum hans. 31 Sá sem kúgar snauðan mann óvirðir skapara hans en sá sem miskunnar snauðum heiðrar hann. 32 Hinn rangláti fellur á illsku sinni en hinum réttláta er ráðvendnin athvarf. 33 Í hjarta hyggins manns hefur viskan hægt um sig, á meðal heimskingja lætur hún mikið yfir sér. 34 Réttlæti er sæmd þjóðar en syndin er smán þjóðanna. 35 Hæfur þjónn hlýtur hylli konungsins en duglaus þjónn uppsker bræði hans. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society