Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Orðskviðirnir 13 - Biblían (2007)

1 Vitur sonur hlýðir fyrirmælum föður síns en hinn þvermóðskufulli sinnir engri umvöndun.

2 Góðs má njóta af ávexti munnsins en svikarana þyrstir í ofbeldi.

3 Sá sem gætir munns síns varðveitir líf sitt en glötun bíður hins lausmála.

4 Sál letingjans girnist og fær ekki en sál hins eljusama mettast ríkulega.

5 Réttlátur maður hatast við lygi en hinn rangláti fremur smán og svívirðu.

6 Réttlætið verndar hinn grandvara en ranglætið verður syndaranum að falli.

7 Einn þykist ríkur en á þó ekkert, annar læst fátækur þótt auðugur sé.

8 Auðæfi manns eru lífi hans lausnargjald en enginn hótar hinum fátæka.

9 Ljós réttlátra logar skært en á lampa ranglátra slokknar.

10 Af hroka kvikna deilur en hjá ráðþægnum mönnum er viska.

11 Skjótfenginn auður hjaðnar en þeim sem safnar smátt og smátt vex auður.

12 Löng eftirvænting gerir hjartað sjúkt en uppfyllt ósk er lífstré.

13 Sá sem fyrirlítur hollráð býr sér glötun en sá sem hlítir leiðsögn hlýtur umbun.

14 Kennsla hins vitra er lífslind og forðar frá snörum dauðans.

15 Góðir vitsmunir veita hylli en vegur svikaranna leiðir í glötun.

16 Vitur maður fer að öllu með hyggindum en flónið dreifir um sig heimsku.

17 Ótrúr sendiboði færir ógæfu en trúr sendimaður lækningu.

18 Fátækt og smán hlýtur sá sem ekki skeytir um áminningar en sá sem tekur umvöndun hlýtur sæmd.

19 Uppfyllt ósk er sálinni sæt en að forðast illt er heimskingjunum andstyggð.

20 Eigðu samneyti við vitra menn, þá verður þú vitur, en illa fer þeim sem leggur lag sitt við heimskingja.

21 Óhamingjan eltir syndarana en gæfan hlotnast hinum réttlátu.

22 Góður maður lætur eftir sig arf handa börnum og barnabörnum en eigur syndarans koma í hlut hins réttláta.

23 Nýrækt fátæklinga gefur ærna fæðu en óhóf sviptir marga efnum.

24 Sá sem sparar vöndinn hatar son sinn en sá sem elskar hann agar hann snemma.

25 Hinn réttláti fær nægju sína en kviður ranglátra er galtómur.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ