Orðskviðirnir 10 - Biblían (2007)Safn spakmæla 1 Orðskviðir Salómons: Vitur sonur gleður föður sinn en heimskur sonur er móður sinni til mæðu. 2 Rangfenginn auður stoðar ekki en réttlæti frelsar frá dauða. 3 Drottinn lætur ekki réttlátan mann þola hungur en kröfum hinna ranglátu hafnar hann. 4 Iðjuleysi færir örbirgð en auðs aflar iðin hönd. 5 Hygginn er sá er safnar á sumri en illa fer þeim sem sefur af sér uppskeruna. 6 Blessun hvílir yfir höfði hins réttláta en lögleysan hylst í munni hins illa. 7 Minning hins réttláta verður blessuð en nafn óguðlegra tærist burt. 8 Sá sem er vitur í hjarta þýðist áminningar en þeim farnast illa sem talar af gáleysi. 9 Sá sem fer rétta vegu gengur óhultur en upp kemst um þann sem þræðir hlykkjóttan veg. 10 Sá sem deplar auga veldur sárindum en sá sem finnur að af hreinskilni stillir til friðar. 11 Lífslind er munnur réttláts manns en lögleysan hylst í munni hins illa. 12 Hatur vekur illdeilur en kærleikurinn breiðir yfir alla bresti. 13 Viska er á vörum hyggins manns en á baki hins óvitra dynur vöndurinn. 14 Vitrir menn geyma þekkingu sína en orð afglapans boða bráða glötun. 15 Auður ríks manns er honum öflugt vígi en fátækt hinna snauðu verður þeim að falli. 16 Eljusemi hins réttláta verður til lífs en gróði hins rangláta til syndar. 17 Sá fer leið lífsins sem hlítir leiðsögn en sá villist af leið sem hafnar umvöndun. 18 Sá sem leynir hatri er hræsnari, sá sem dreifir hviksögum er heimskingi. 19 Málæðinu fylgja yfirsjónir en sá breytir hyggilega sem hefur taumhald á tungu sinni. 20 Tunga hins réttláta er hreint silfur, vit hins óguðlega er lítils virði. 21 Orð hins réttláta eru margra framfæri en afglaparnir deyja úr fákænsku. 22 Blessun Drottins auðgar og erfiði mannsins bætir engu við hana. 23 Heimskingjanum er ósóminn ánægja en viskan er hyggnum manni gleði. 24 Það sem hinn óguðlegi óttast kemur yfir hann en réttlátum verður að von sinni. 25 Stormur feykir burt hinum rangláta en hinn réttláti stendur á ævarandi grunni. 26 Það sem tönnunum er vínsýra og augunum reykur, það er letinginn þeim sem fela honum erindi. 27 Ótti Drottins lengir lífdagana en æviár ranglátra verða stytt. 28 Eftirvænting réttlátra endar í gleði en vonir ranglátra rætast ekki. 29 Vegur Drottins er athvarf vammlausum en illvirkjum tortíming. 30 Hinum réttláta verður ekki þokað og hinir óguðlegu munu ekki byggja landið. 31 Af munni hins réttláta streymir viska en lygatungan verður skorin burt. 32 Varir hins réttláta vita hvað geðfellt er en munnur óguðlegra er flærðin ein. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society