Nahúm 3 - Biblían (2007)1 Vei hinni blóðseku borg sem full er af svikum og ránsfeng og lætur ekki af ofbeldi. 2 Svipusmellir. Hjólaskrölt. Hófatak. Vagnagnýr. 3 Riddarar geysast fram, sverð blika, spjót leiftra. Fjöldi valfallinna, kestir af hræjum. Óteljandi eru líkin, um þau hrasa menn. 4 Vegna hins mikla lauslætis skækjunnar, hinnar fögru og fjölkunnugu, sem vélaði þjóðir með lauslæti sínu og kynstofna með töfrum sínum, 5 vitja ég þín, segir Drottinn allsherjar, og ég mun bregða klæðafaldi þínum upp að framan og sýna þjóðunum nekt þína og konungsríkjunum blygðun þína. 6 Ég mun varpa yfir þig saur og svívirða þig svo að þú verðir öðrum víti til varnaðar. 7 Þá hrökkva þeir undan sem líta þig og segja: „Níníve er lögð í eyði. Hver aumkar hana nú?“ Hvar ætti ég að leita þér huggara? 8 Er þér, Níníve, vandara um en Nó-Ammón sem lá við Nílarfljót, umflotin vatni, og átti sér fljótið að vígi og vatnið að varnarvirki? 9 Styrk sinn sótti hún til Eþíópíumanna og hinna óteljandi Egypta. Pútmenn og Líbíumenn voru hjálparlið hennar. 10 Og þó flæmdist hún í útlegð og varð að þola herleiðingu, ungbörn hennar voru einnig lamin í hel á öllum gatnamótum. Hlutkesti var varpað um fyrirmenn hennar og allir höfðingjar hennar voru reyrðir í fjötra. 11 Eins verður þú ofurölvi, eins verður þú magnþrota, eins muntu leita hælis fyrir fjandmönnum þínum. 12 Öll virki þín eru sem fíkjutré sem bera vorfíkjur. Séu þau hrist falla þær í munn hvers sem vill. 13 Hermenn þínir eru sem konur, hlið lands þíns hafa lokið sér upp sjálf fyrir óvinum þínum, slagbrandarnir hafa orðið eldi að bráð. 14 Austu þér vatnsforða fyrir umsátina, styrktu varnarvirki þín. Gakktu í leireðjuna, troddu leirinn og hafðu leirmótin tiltæk. 15 Þar mun eldurinn eyða þér, sverðið tortíma þér, eyða þér eins og engisprettufaraldur, jafnvel þótt lið þitt verði sem engisprettusægur, iðandi grasvargur. 16 Kaupmenn þínir voru fleiri en stjörnur himinsins, en sem grasvargur skiptu þeir hömum og hurfu á braut. 17 Verðir þínir voru sem engisprettur og herforingjar þínir eins og skordýrasægur sem sest á steingarða á svölum degi en flýgur burt þegar sólin birtist og enginn veit hvað af honum verður. 18 Hirðar þínir blunda, Assýríukonungur, leiðtogar þínir sofa. Menn þínir hafa tvístrast um hæðirnar og enginn er til að safna þeim saman. 19 Engin bót verður ráðin á meinsemd þinni, sár þitt er ólæknandi. Allir sem fá tíðindin um þig munu klappa saman lófum því að hver hefur ekki mátt þola linnulausa illsku þína? |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society