Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Míka 7 - Biblían (2007)


Eintal spámannsins

1 Vei mér. Fyrir mér er komið eins og þegar ávöxtum hefur verið safnað, og leitað er að eftirhreytum vínberjanna. Enginn klasi er eftir til að neyta, engar vorfíkjur sem hugnast mér.

2 Hinir guðhræddu eru horfnir úr landinu, engir ráðvandir menn eftir. Allir bíða færis að úthella blóði, fanga hver annan í net sín.

3 Til ills eru báðar hendur fram réttar. Höfðinginn heimtar og dómarinn er falur. Tignarmaðurinn krefst alls sem hann girnist og það veitist honum.

4 Hinn besti meðal þeirra er sem þyrnir og hinn ráðvandasti verri en þyrnigerði. Sá dagur er kominn sem verðir þínir boðuðu, dagur refsingar þeirra. Nú eru úrræði þeirra engin.

5 Trúið ekki kunningja yðar, treystið ekki vini, gættu tungu þinnar fyrir henni sem hvílir í faðmi þínum.

6 Því að sonur fyrirlítur föður og dóttir rís gegn móður og tengdadóttir gegn tengdamóður og hjú gerast fjendur húsbónda síns.

7 En ég mæni í von til Drottins, bíð eftir Guði hjálpræðis míns. Guð minn mun heyra til mín.


Von Síonar

8 Hlakkaðu ekki yfir mér, fjandkona mín. Þótt ég falli rís ég á ný, þótt ég sitji í myrkri er Drottinn ljós mitt.

9 Ég hef syndgað gegn Drottni og hlýt því að þola reiði hans uns hann hefur talað máli mínu og látið mig ná rétti mínum. Hann leiðir mig út í ljósið og ég mun sjá réttlæti hans.

10 Það mun fjandkona mín sjá og blygðun hennar verður algjör, hennar sem segir við mig: „Hvar er Drottinn, Guð þinn?“ Og ég mun horfa á þegar hún verður fótum troðin eins og aur á strætum.

11 Sá dagur kemur að múrar þínir verða endurreistir og þann dag mun land þitt stækka að mun.

12 Þann dag munu menn snúa aftur til þín, koma allt frá Assýríu til Egyptalands, frá Egyptalandi allt til Efrat, frá hafi til hafs og fjöllum til fjalla.

13 En land þitt mun leggjast í auðn vegna íbúa þess, sá verður ávöxtur misgjörða þeirra.

14 Gættu þjóðar þinnar með hirðisstafnum, þinnar eigin hjarðar sem býr ein sér í kjarrskógi umkringd gróðurlendum. Haltu henni til beitar í Basan og Gíleað eins og forðum.

15 Sýndu oss aftur undur eins og þegar þú fórst frá Egyptalandi.

16 Þjóðirnar skulu sjá það og blygðast sín þrátt fyrir allan mátt sinn. Þær munu leggja hönd á munn sér og loka hlustum sínum.

17 Þær munu sleikja rykið eins og höggormurinn, eins og kvikindin sem skríða á jörðinni. Þær munu koma skjálfandi úr fylgsnum sínum til Drottins, Guðs vors. Þær munu óttast þig og virða.

18 Hver er slíkur Guð sem þú, sem fyrirgefur misgjörðir og sýknar af syndum þá sem eftir eru af arfleifð þinni? Reiði Guðs varir ekki að eilífu því að hann hefur unun af að sýna mildi.

19 Og enn sýnir hann oss miskunnsemi, hann fótumtreður sök vora. Já, þú varpar öllum syndum vorum í djúp hafsins.

20 Þú munt halda tryggð þinni við Jakob og sýna Abraham miskunnsemi eins og þú sórst feðrum vorum forðum.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ