Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Míka 6 - Biblían (2007)


Guð ákærir

1 Heyrið það sem Drottinn segir: Flyt fjöllunum mál þitt, lát hæðirnar heyra raust þína.

2 Fjöll, hlýðið á kæru Drottins, leggið við hlustir, undirstöður jarðarinnar, því að Drottinn flytur mál gegn þjóð sinni, lætur Ísrael svara til saka:

3 Þjóð mín, hvaða rangindum hef ég beitt þig? Og hvaða harðneskju hef ég sýnt? Svara mér því.

4 Ég leiddi þig út úr Egyptalandi, leysti þig úr þrælahúsinu. Ég sendi Móse, Aron og Mirjam til að fara fyrir þér.

5 Minnstu þess, þjóð mín, sem Balak Móabskonungur vélaði gegn þér og svaranna sem Bíleam Beórsson veitti honum. Minnstu fararinnar frá Sittím til Gilgal. Þá skilurðu réttlætisverk Drottins.

6 Hvað á ég að koma með fram fyrir Drottin, fram fyrir Guð á hæðum? Á ég að koma fram fyrir hann með brennifórnir, með veturgamla kálfa?

7 Hefur Drottinn þóknun á þúsundum hrúta og tugþúsundum lækja af ólífuolíu? Á ég að fórna frumburði mínum fyrir synd mína, ávexti kviðar míns fyrir misgjörðir mínar?

8 Maður, þér hefur verið sagt hvað gott er og hvers Drottinn væntir af þér: þess eins að þú gerir rétt, ástundir kærleika og þjónir Guði í hógværð.


Refsað fyrir svik og ofríki

9 Drottinn hrópar til borgarinnar og vitur er sá sem óttast nafn hans: Heyrið þetta, kynstofn og borgarsamkunda.

10 Get ég látið bat-mæli hins guðlausa óátalinn eða hinn nauma efu-mæli sem ég hef fordæmt?

11 Á ég að láta honum órefsað þrátt fyrir ranga vog og sekk með sviknum vogarsteinum?

12 Auðkýfingar borgarinnar beita ofbeldi, íbúar hennar ljúga og svikul er tungan í munni þeirra.

13 Og nú tek ég að refsa þér og eyða þér vegna misgjörða þinna.

14 Þú munt eta en þó ekki seðjast og sulturinn mun sverfa að þér. Því sem þú hyggst forða undan færðu ekki bjargað, og það sem þú bjargar ofursel ég sverði.

15 Þú munt sá en ekki uppskera, troða ólífur en ekki smyrja þig olíu, troða vínþróna en ekki drekka vínið.

16 Þú hefur farið að lögum Omrís og háttum Akabs ættar, líferni þeirra hafið þér tamið yður. Því legg ég borgina í auðn og geri íbúa hennar að athlægi. Þér munuð baka yður fyrirlitningu þjóðar minnar.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ