Míka 5 - Biblían (2007)Friðarhöfðinginn frá Betlehem 1 En þú, Betlehem í Efrata, ein minnsta ættborgin í Júda, frá þér læt ég þann koma er drottna skal í Ísrael. Ævafornt er ætterni hans, frá ómunatíð. 2 Því verður þjóðin yfirgefin þar til sú hefur fætt er fæða skal. Þá munu þeir sem eftir lifa ættmenna hans snúa aftur til Ísraels lýðs. 3 Hann mun standa sem hirðir þeirra í krafti Drottins, í mætti nafns Drottins, Guðs síns, og þeir óhultir verða. Þá munu menn mikla hann allt til endimarka jarðar. 4 Hann mun tryggja friðinn. Ráðist Assýringar inn í land vort og brjótist inn í virkin teflum vér gegn þeim sjö hirðum og átta smurðum leiðtogum. 5 Þeir munu vaka yfir landi Assýringa með sverð í hendi og með sveðju yfir landi Nimrods. Hann mun frelsa oss undan Assýringum vaði þeir yfir jörð vora og fótumtroði lendurnar. Þeir sem eftir verða 6 Þeir sem eftir verða af Jakobs ætt meðal hinna mörgu þjóða verða sem dögg frá Drottni, gróðrarskúr á grasi. Þeir vænta einskis af neinum og binda ekki vonir við mannanna börn. 7 Þeir sem eftir verða af Jakobs ætt meðal þjóðanna, meðal margra þjóðflokka, verða sem ljón á meðal skógardýra, eins og ljónshvolpar í sauðahjörð. Þeir ráðast fram og tæta í sundur og enginn fær rönd við reist. 8 Upp skaltu hefja arm þinn gegn andstæðingum þínum svo að öllum óvinum þínum verði tortímt. Landið hreinsað 9 Á þeim degi, segir Drottinn, eyði ég öllum hestum sem þú átt og brýt stríðsvagna þína. 10 Ég legg í eyði borgir lands þíns og brýt öll varnarvirki þín. 11 Ég eyði galdrinum sem þú stundar og spásagnamenn skulu ekki framar vera hjá þér. 12 Ég brýt skurðgoð þín og helgisúlur. Þú skalt ekki framar tilbiðja verk þinna eigin handa. 13 Ég ríf niður Asérur þínar og eyði borgum þínum. 14 Af heift og reiði hegni ég þjóðum sem hafa óhlýðnast. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society