Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Míka 3 - Biblían (2007)


Gegn leiðtogum þjóðarinnar

1 Ég sagði: Heyrið, höfðingjar Jakobs og leiðtogar Ísraels ættar. Vissulega áttuð þér að vita hvað rétt er.

2 En þér hatið það sem gott er og elskið það sem illt er, fláið af mönnum húðina, tætið hold af beinum þeirra.

3 Þeir eta hold þjóðar minnar, flá af skinnið og brjóta beinin, hluta holdið niður eins og kjöt í pott eða steik á pönnu.

4 Þeir munu hrópa til Drottins en hann mun ekki svara, heldur byrgja auglit sitt fyrir þeim því að verk þeirra voru ill.


Gegn spámönnum

5 Svo mælir Drottinn um spámennina sem villa um fyrir þjóð minni: Fyrir matartuggu boða þeir frið en stríð hverjum þeim sem engu stingur upp í þá.

6 Þess vegna mun nótt koma yfir yður en engar vitranir, myrkur en engir spádómar. Sól spámannanna mun setjast og dagar myrkvast.

7 Sjáendur verða sér til minnkunar og spásagnamenn hafðir að spotti. Allir munu þeir hylja andlit sitt því að Guð veitir þeim engin svör.

8 En mér hefur andi Drottins veitt fullan þrótt, réttsýni og hugrekki til að átelja Jakob fyrir brot hans og Ísrael fyrir synd hans.


Gegn mútuþægum leiðtogum og prestum

9 Heyrið þetta, leiðtogar Jakobs ættar, höfðingjar Ísraels ættar, þér sem hafið andstyggð á réttlæti og hallið hverju því sem rétt er,

10 þér sem byggið Síon með blóði og Jerúsalem með ódæðisverkum

11 Höfðingjar hennar þiggja mútur fyrir dóma sína, prestar hennar fé fyrir ráð sín og spámenn hennar spá gegn gjaldi. Þó reiða þeir sig á Drottin og segja: „Er Drottinn ekki með oss? Engin ógæfa hendir oss.“

12 Af yðar sökum verður Síon plægð sem akur, Jerúsalem verður að rúst og musterisfjallið að kjarrivaxinni hæð.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ