Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Míka 2 - Biblían (2007)


Gegn ágirnd ofríkismanna

1 Vei þeim sem efna til ranginda, hyggja á ill verk í hvílu sinni og vinna þau þegar dagur rennur, því að þess eru þeir megnugir.

2 Þeir ágirnast akra og ræna þeim, hús og stela þeim. Þeir svipta menn heimilum sínum og fólkið arfleifð sinni.

3 Vegna þessa segir Drottinn: Meiri ógæfu baka ég þessari kynslóð en þér fáið risið undir. Uppréttir munuð þér eigi ganga, slík verður sú hörmungatíð.

4 Á þeim degi verður níð kveðið um yður og harmasöngur hafinn: „Vér erum glataðir. Eignum þjóðar minnar er svipt burt, landið tekið af henni og því deilt milli kúgara.“

5 Og sannarlega mun enginn yðar kasta mælisnúru yfir land í viðurvist safnaðar Drottins.

6 „Hættið þessu þrugli,“ þrugla þeir. „Engin þörf er á svona þrugli. Vor bíður engin smán.“

7 Er fordæming þá komin yfir ætt Jakobs? Er Drottinn orðinn bráðlyndur? Er þetta háttur hans? Boða orð hans hinum ráðvöndu ekki gæfu?

8 En þér rísið gegn þjóð minni sem fjandmenn, þér rífið kyrtilinn af hinum friðsama og ugglausa vegfarendur takið þér herfangi.

9 Þér rekið konur þjóðar minnar af heimilunum, sem voru yndi þeirra, og sviptið börn þeirra að eilífu heiðrinum sem þau hafa þegið af mér.

10 Burt héðan. Farið burt. Hér eigið þér engan samastað. Spilling yðar saurgar og ber í sér ómælda hörmung.

11 En kæmi nú hræsnari og boðaði hégóma og lygi sem svo: „Ég boða þér vín og áfengan drykk,“ þá væri það spámaður fyrir þvílíka þjóð.


Fyrirheit

12 Ég mun safna yður öllum saman, Jakobs ætt, og smala saman sauðum Ísraels eins og sauðfé í rétt, eins og hjörð í haga, og þá verður kliðurinn mikill af mannmergðinni.

13 Fyrir þeim fer brautryðjandinn, þeir ryðjast út um hliðið. Fremstur fer konungur þeirra og Drottinn í broddi fylkingar.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ