Jóel 3 - Biblían (2007)Dagur Drottins 1 Síðar mun ég úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá, gamalmenni yðar mun dreyma drauma og ungmenni yðar munu fá vitranir, 2 jafnvel yfir þræla og ambáttir mun ég úthella anda mínum á þeim dögum. 3 Og tákn mun ég láta verða á himni og jörð: blóð, eld og reykjarstróka. 4 Sólin verður myrk og tunglið sem blóð áður en dagur Drottins kemur, hinn mikli og ógurlegi. 5 En hver sem ákallar nafn Drottins verður hólpinn. Á Síonarfjalli og í Jerúsalem munu nokkrir lifa af eins og Drottinn hefur heitið. Hver sem ákallar nafn Drottins mun frelsast. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society