Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Jóel 2 - Biblían (2007)


Dagur Drottins

1 Þeytið hornið á Síon og látið varnaðaróp gjalla frá hinu heilaga fjalli mínu. Skjálfi nú öll heimsbyggð því að kominn er dagur Drottins, nálægur er hann,

2 dagur myrkurs og drunga, dagur niðdimmu og dökkra skýja. Þau síga sem sorti yfir fjöllin, þar fer risavaxin og máttug þjóð. Engan líka hefur þetta átt sér frá upphafi vega og ekkert þessu líkt mun aftur verða um aldir alda.


Framrás engisprettuhersins

3 Fyrir þeim fer eyðandi eldur og slóð þeirra er logandi bál, fyrir þeim er landið sem Edensgarður, í slóð þeirra öræfi og auðn sem enginn fær flúið.

4 Áþekkir hestum eru þeir, fráir sem gæðingar,

5 það glymur sem í stríðsvögnum er þeir þjóta um fjallatindana, snarkar sem í loga af hálmi, kliðar sem máttugur her búist til bardaga.

6 Fyrir þeim skjálfa þjóðirnar, allar ásjónur skipta litum.

7 Þeir þjóta fram sem stríðsgarpar, klífa borgarmúra sem hermenn. Hver heldur eigin stefnu, enginn villist í annars braut.

8 Enginn hamlar öðrum, hver stefnir eigin leið. Þótt kastvopnum sé beitt gegn þeim bíða þeir ekkert tjón.

9 Þeir ráðast á borgina, þjóta um borgarmúrinn, klifra upp húsin, fara inn um gluggana eins og þjófar.

10 Fyrir þeim skelfur jörðin og himinninn nötrar, sól og tungl myrkvast og stjörnurnar synja um birtu sína.

11 Drottinn hefur upp raustina frammi fyrir her sínum. Afar fjölmennt er lið hans og óteljandi þeir sem hlíta skipun hans því að vissulega er dagur Drottins mikill og ógurlegur. Hver fær þá staðist?


Hvatt til iðrunar

12 En jafnvel nú, segir Drottinn, skuluð þér snúa yður til mín af öllu hjarta yðar, með föstu, með gráti, með harmakveini.

13 Rífið hjörtu yðar fremur en klæði yðar og snúið aftur til Drottins, Guðs yðar. Miskunnsamur er hann og líknsamur, seinn til reiði og gæskuríkur og iðrast hins illa.

14 Hver veit nema hugur hans snúist enn og mildist svo að hann láti blessun hljótast af, svo að þér getið aftur fært Drottni, Guði yðar, matfórn og dreypifórn.

15 Þeytið hornið á Síon, boðið helga föstu, efnið til helgrar samkundu.

16 Kallið fólkið saman, helgið söfnuðinn, safnið saman öldungunum, safnið saman börnunum, jafnvel þeim sem enn eru á brjósti. Brúðguminn komi út úr herbergi sínu og brúðurin undan tjaldhimni sínum.

17 Milli fordyris og altaris skulu prestarnir, þjónar Drottins, gráta og segja: „Þyrmdu þjóð þinni, Drottinn, ofurseldu arfleifð þína ekki smáninni svo að þjóðirnar hæði hana. Hví skyldu þjóðirnar spyrja: Hvar er Guð þeirra?

18 Megi vandlæting Drottins kvikna vegna lands hans og megi hann sýna þjóð sinni umhyggju.“


Endurreisn heitið

19 Og Drottinn svaraði og sagði við þjóð sína: Sjá, nú sendi ég yður korn, vínlög og olíu, þar munuð þér hljóta fylli yðar. Og ég mun aldrei framar gera yður að aðhlátursefni þjóðanna.

20 Andstæðinginn í norðri rek ég langt frá yður, hann hrek ég á öræfi og óbyggðir, framvarðarsveit hans að hafinu í austri og baksveitir hans að hafinu í vestri. Af honum verður mikill óþefur, stækur ódaunn stígur upp af honum enda hefur hann afrekað mikið.

21 Óttast ekki, land, heldur fagna og gleðst því að Drottinn hefur unnið mikil stórvirki.

22 Óttist ekki, dýr merkurinnar. Beitilönd öræfanna gróa, trén bera ávöxt, fíkjutrén og vínviðurinn veita þrótt sinn.

23 Gleðjist, Síonarbúar, og fagnið í Drottni, Guði yðar. Af réttlæti sínu hefur hann sent yður vorregnið og eins og fyrrum mun hann gefa yður vorregn og haustregn.

24 Þreskivellir munu fyllast af korni og kerin flóa yfir af vínlegi og olíu.

25 Ég bæti yður árin sem engisprettan át upp, þau sem smávargurinn, grasvargurinn og jarðvargurinn átu, sá mikli her sem ég sendi gegn yður.

26 Þér munuð borða fylli yðar og lofa nafn Drottins, Guðs yðar, sem svo undursamlega hefur við yður breytt. Og aldrei framar mun þjóð mín þola smán.

27 Og þér munuð vita að ég dvelst með Ísrael og er Drottinn, Guð yðar, ég, enginn annar. Og aldrei framar mun þjóð mín þola smán.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ