Jesaja 4 - Biblían (2007)1 Sjö konur munu þrífa í sama mann á þeim degi og segja: „Vér skulum sjálfar fæða oss og klæða, leyf oss aðeins að bera nafn þitt, tak smánina frá oss.“ Hin nýja Jerúsalem 2 Á þeim degi verður kvistur Drottins fagur og vegsamlegur og ávöxtur landsins stolt og vegsemd þeirra í Ísrael sem af komast. 3 Þeir sem af lifa á Síon og þeir, sem eftir verða í Jerúsalem, verða nefndir heilagir, allir sem skráðir eru til lífsins í Jerúsalem. 4 Þegar Drottinn hefur þvegið óhreinindin af Síonardætrum og skolað burt blóðið úr Jerúsalem með dóms- og hreinsunaranda, 5 þá skapar Drottinn ský um daga og rjúkandi og bjartan eldsloga um nætur yfir öllu Síonarfjalli þeim sem þar safnast saman. Því að yfir allri dýrðinni verður hlíf. 6 Laufþak mun veita forsælu í hita dagsins og hæli og skjól í stormi og regni. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society