Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Jeremía 47 - Biblían (2007)


Gegn Filisteum

1 Orð Drottins um Filistea sem kom til Jeremía spámanns áður en faraó tók Gasa.

2 Svo segir Drottinn: Vatn sem streymir úr norðri mun brjótast fram sem stórfljót, það mun flæða yfir landið og allt sem í því er, borgirnar og íbúa þeirra, menn munu æpa hátt og allir íbúar landsins hljóða.

3 Þegar hófadynur stríðshesta þeirra glymur, dynurinn í hervögnum þeirra ærir og hjól þeirra hvína, munu feður ekki líta til barna sinna því að hendur þeirra lémagnast.

4 Sá dagur er kominn að öllum Filisteum verði eytt. Öllum sem komast undan og gætu hjálpað Týrus og Sídon verður tortímt því að Drottinn eyðir Filisteum, öllum sem eftir eru af þeim sem koma frá Kaftór.

5 Gasa hefur rakað á sig skalla, Askalon er þögnuð, hve lengi ætlið þér að rista á yður skinnsprettur, þér, sem eftir eruð af niðjum Anaks?

6 Vei, sverð Drottins, hvenær hvílist þú? Farðu aftur í slíðrið, taktu á þig náðir. Mál er að linni.

7 Hvernig gæti það hvílst því að Drottinn gaf því fyrirmæli? Hann sendi það gegn Askalon og landinu við strönd hafsins.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ