Jeremía 30 - Biblían (2007)Bók huggunarinnar 1 Orðið sem kom frá Drottni til Jeremía: 2 Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Skráðu í bók öll þau orð sem ég hef flutt þér. 3 Því að þeir dagar koma, segir Drottinn, að ég sný við hag þjóðar minnar, Ísraels og Júda, segir Drottinn. Ég mun leiða þá aftur til landsins sem ég fékk feðrum þeirra og þeir tóku til eignar. 4 Þetta eru orðin sem Drottinn flutti Ísrael og Júda. Óttast ekki, ég er með þér 5 Svo segir Drottinn: Vér heyrum angistaróp til marks um ótta en ekki frið. 6 Spyrjið og gætið að: Getur karl alið barn? Hví eru allir karlmenn, sem ég sé, með hendur á lendum eins og kona með jóðsótt? Hví er hvert andlit nábleikt? 7 Já, mikill er þessi dagur, engum öðrum líkur. Þetta er þrengingatíð fyrir Jakob en honum verður bjargað. 8 Þann dag, segir Drottinn hersveitanna, mun ég brjóta okið af hálsi hans og slíta hlekki hans. Þeir munu ekki lengur þræla fyrir framandi menn 9 heldur þjóna Drottni, Guði sínum, og Davíð, konungi sínum, sem ég mun hefja upp þeirra vegna. 10 Óttast ekki, þjónn minn, Jakob, segir Drottinn, og lát ekki hugfallast, Ísrael. Ég mun sjálfur bjarga þér úr fjarlægu landi, niðjum þínum úr landinu þar sem þeir eru útlagar. Jakob mun snúa heim og næðis njóta. Hann mun búa þar óhultur og enginn ógna honum. 11 Já, ég er með þér, segir Drottinn, til að bjarga þér. Ég mun eyða öllum þeim þjóðum sem ég dreifði þér á meðal. Þér einum mun ég aldrei eyða en ég mun refsa þér við hæfi og ekki láta þér með öllu óhegnt. 12 Svo segir Drottinn: Brot þitt verður ekki grætt, sár þitt ekki læknað. 13 Enginn leitar réttar þíns. Meinið hefst illa við, þú færð enga bót. 14 Allir vinir þínir hafa gleymt þér, þeir vitja þín ekki því að ég laust þig sem fjandmann, hirti þig harðlega því að sekt þín var mikil, syndir þínar margar. 15 Hví hljóðar þú vegna áverka þíns, vegna ólæknandi kvalar þinnar? Vegna mikillar sektar þinnar og fjölmargra synda hef ég gert þér þetta. 16 En allir sem gleyptu þig verða gleyptir og allir sem kúguðu þig gerðir útlægir. Þeir sem rændu þig verða rændir, þá sem tóku af þér herfang geri ég að herfangi. 17 Ég mun græða þig, lækna sár þín, segir Drottinn, því að þú varst nefnd „hin brottrekna“, „Síon sem enginn spyr um“. Endurreisn þjóðarinnar 18 Svo segir Drottinn: Ég sný við högum Jakobs tjalda og sýni bústöðum hans miskunn. Borgin skal endurreist á rústunum og höllin standa þar sem hún hefur alltaf staðið. 19 Þaðan skal hljóma lofsöngur og fögnuður. Ég fjölga þeim, þeir verða ekki fáir, ég veiti þeim virðingu, þeir verða ekki lítilsvirtir. 20 Synir Jakobs verða sem forðum og söfnuður hans verður stöðugur fyrir augliti mínu en alla kúgara hans dreg ég til ábyrgðar. 21 Afkomandi hans verður leiðtogi hans, af ætt hans kemur drottnari hans. Ég mun leyfa honum að ganga fram fyrir mig svo að hann geti nálgast mig. Hver annar mundi hætta lífi sínu til að nálgast mig? segir Drottinn. 22 Þér verðið mín þjóð og ég verð yðar Guð. 23 Já, stormur Drottins, reiði hans, brýst fram, hvirfilvindur sem steypist yfir höfuð hinna óguðlegu. 24 Bálandi reiði Drottins linnir ekki fyrr en hann hefur að fullu framkvæmt fyrirætlanir hjarta síns. Síðar munuð þér skilja það. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society