Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Jeremía 2 - Biblían (2007)


Ádeiluræður gegn Júda og Jerúsalem Ótrú þjóð

1 Orð Drottins kom til mín:

2 Far og hrópa til Jerúsalembúa: Svo segir Drottinn: Ég minnist enn æskutryggðar þinnar, kærleika þíns er þú sem brúður fylgdir mér í eyðimörkinni, landi sem enginn getur ræktað.

3 Ísrael var helgaður Drottni, frumgróði uppskeru hans. Allir sem neyttu einhvers af honum urðu sekir, ógæfa kom yfir þá, segir Drottinn.

4 Hlýðið á orð Drottins, þér sem eruð af ætt Jakobs og allir ættbálkar Ísraels!

5 Svo segir Drottinn: Hvaða rangindi fundu feður yðar hjá mér, fyrst þeir hurfu frá mér og eltu fánýt goð og urðu því sjálfir fánýtir?

6 Þeir spurðu ekki: Hvar er Drottinn sem leiddi oss frá Egyptalandi og vísaði oss veg í eyðimörkinni, um þurrt og sprungið land, skrælnað og niðdimmt, land sem enginn fer um og enginn maður byggir?

7 Ég leiddi yður inn í gjöfult land svo að þér gætuð notið ávaxta þess og gæða. En þegar þér komuð inn í land mitt saurguðuð þér það og gerðuð erfðaland mitt að viðurstyggð.

8 Prestarnir spurðu ekki: „Hvar er Drottinn?“ Þeir sem gættu laganna þekktu mig ekki, hirðarnir sviku mig, spámennirnir spáðu í nafni Baals og eltu fánýt goð.

9 Þess vegna hlýt ég að ákæra yður, segir Drottinn og ég hlýt að ákæra barnabörn yðar.

10 Farið til eyja Kitta og litist um eða sendið til Kedars og spyrjist rækilega fyrir, gangið úr skugga um hvort annað eins hafi nokkru sinni átt sér stað.

11 Hefur nokkur þjóð skipt um guði þótt þeir væru engir guðir? En þjóð mín hefur látið vegsemd sína fyrir það sem ekkert er.

12 Hryllið yður, himnar, titrið og nötrið, segir Drottinn,

13 því að þjóð mín hefur gert tvennt illt: Hún hefur yfirgefið mig, uppsprettu lifandi vatns, og grafið sér brunna, sprungna brunna sem ekki halda vatni.

14 Er Ísrael ánauðugur? Er hann þrælborinn í húsi eiganda síns? Hvers vegna hefur hann orðið bráð

15 sem ljón grenjuðu yfir og öskruðu gegn? Land hans var lagt í eyði, borgir hans brenndar og yfirgefnar.

16 Jafnvel menn frá Nóf og Takpanes munu raka á þér hvirfilinn.

17 Hefurðu ekki bakað þér þetta allt með því að yfirgefa Drottin, Guð þinn, er hann leiddi þig á veginum?

18 Hvaða ávinning hefurðu af því að fara til Egyptalands og drekka vatn úr Níl? Hvað hefurðu upp úr því að fara til Assýríu og drekka vatn úr Efrat?

19 Illska þín mun aga þig og fráhvarf þitt refsa þér. Játa og ger þér ljóst að þú líður böl og kvelst af því að þú sveikst Drottin, Guð þinn, og óttaðist mig ekki, segir Drottinn, Guð hersveitanna.


Hjáguðadýrkun

20 Fyrir löngu braust þú af þér okið og sleist af þér fjötrana. Þú sagðir: „Ég vil ekki vera þræll.“ En á hverjum háum hól, undir hverju grænu tré, lagðist þú og hóraðist.

21 Þegar ég gróðursetti þig varstu gæðavínviður, hver græðlingur var af úrvalskyni. Hvernig gastu breyst í illgresi, úrkynjaðan vínvið?

22 Þótt þú þvægir þér með lút og sparaðir ekki sápuna verður synd þín óafmáanlegur blettur fyrir augum mér, segir Drottinn Guð.

23 Hvernig getur þú sagt: „Ég hef ekki saurgað mig, ég hef ekki elt Baalana.“ Hyggðu að hegðun þinni í dalnum, viðurkenndu hvað þú hefur gert. Þú ert léttfætt úlfaldahryssa sem rásar um,

24 stekkur síðan út í eyðimörkina og frýsar af frygð. Hver getur hamið losta hennar? Þeir sem sækjast eftir henni þurfa ekki að þreyta sig, þeir ganga að henni vísri á gangmálum.

25 Hlífðu fæti þínum svo að þú gangir ekki af þér skóinn, hlífðu kverkunum við þorsta. En þú segir: „Nei, það er til einskis. Ég laðast að þeim sem eru framandi og fylgi þeim.“

26 Eins og þjófur skammast sín þegar hann er staðinn að verki hljóta þeir sem eru af ætt Ísraels að skammast sín, þeir, konungar þeirra og embættismenn, prestar þeirra og spámenn.

27 Þeir segja við trédrumb: „Þú ert faðir minn,“ og við steininn: „Þú hefur fætt mig.“ Þeir snúa við mér baki, ekki andlitinu. En þegar þeir eru í nauðum staddir segja þeir: „Rís upp og hjálpa oss.“

28 Hvar eru guðir þínir sem þú sjálfur hefur gert þér? Þeir skulu rísa upp þegar þú ert í nauðum staddur og hjálpa þér ef þeir geta. Því að guðir þínir, Júda, eru jafnmargir og borgir þínar.


Verðskulduð refsing

29 Hvers vegna ákærið þér mig? Þér hafið allir brugðist mér, segir Drottinn.

30 Til einskis hirti ég syni yðar, þeir létu sér ekki segjast. Eins og glefsandi ljón tortímdu sverð yðar spámönnunum.

31 Þér sem nú lifið, gefið gaum að orði Drottins: Hef ég verið eyðimörk fyrir Ísrael eða niðdimmt land? Hvers vegna segir þjóð mín: „Vér förum þangað sem oss sýnist, vér snúum ekki aftur til þín.“

32 Mun mær gleyma skarti sínu, brúður belti sínu? En þjóð mín hefur gleymt mér fyrir óralöngu.

33 Það vefst ekki fyrir þér að finna leið til elskhuga þíns. Þú hefur gert þér illvirkin töm.

34 Á klæðafaldi þínum má jafnvel finna blóð úr fátæklingum, saklausum mönnum sem þú stóðst þó ekki að innbroti. Þrátt fyrir allt þetta

35 segir þú: „Ég er saklaus. Reiði hans gegn mér hefur sefast.“ En ég dreg þig fyrir rétt vegna þess að þú segir: „Ég hef ekki syndgað.“

36 Hversu auðvelt áttu með að velja nýja leið? En þú verður fyrir vonbrigðum með Egyptaland eins og Assýría olli þér vonbrigðum.

37 Þaðan verður þú einnig að ganga með hendur á höfði því að Drottinn hefur hafnað þeim sem þú treystir, hjálp þeirra mun reynast þér fánýt.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ