Hósea 2 - Biblían (2007)Fyrirheit um náð Guðs 1 Fjöldi Ísraelsmanna verður sem sandkorn á sjávarströnd sem hvorki verða mæld né talin. Í stað þess að sagt er við þá: „Þér eruð ekki þjóð mín,“ verða þeir nefndir „Synir hins lifandi Guðs“. 2 Júdamenn og Ísraelsmenn munu sameinast og taka sér einn leiðtoga og snúa heim frá landinu því að mikill er dagur Jesreel. 3 Segið við bræður yðar: „Þér eruð lýður minn“ og við systur yðar: „Yður er miskunnað“. Ótrú eiginkona, ótryggð Ísraels 4 Kærið móður yðar, kærið, því að hún er ekki eiginkona mín og ég ekki eiginmaður hennar. Hún skal fjarlægja skækjumerkið af andliti sínu og hórumerkið milli brjósta sinna. 5 Annars fletti ég hana klæðum og skil hana eftir nakta eins og daginn sem hún fæddist, ég læt hana verða eins og eyðimörk, geri hana eins og skrælnað land og læt hana deyja úr þorsta. 6 Börnum hennar sýni ég enga miskunn því að þau eru hórbörn. 7 Já, móðir þeirra drýgði hór, hún, sem bar þau undir belti, varð sér til skammar því að hún sagði: „Ég elti ástmenn mína, þeir gefa mér brauð mitt og vatn, ull mína og hör, olíu og vín.“ 8 Þess vegna loka ég vegi þínum með þyrnigerði og hleð fyrir með steinvegg, svo að þú finnir ekki stigu þína. 9 Hún mun elta ástmenn sína en ekki ná þeim, hún mun leita þeirra en ekki finna þá. Þá mun hún segja: „Nú fer ég og sný aftur til fyrsta eiginmanns míns því að þá leið mér betur en núna.“ 10 En hún skilur ekki að það var ég sem gaf henni korn, vín og olíu og jós yfir hana silfri og gulli sem notað var í Baalsmyndir. 11 Þess vegna tek ég korn mitt aftur þegar tími þess kemur og vín mitt þegar tími þess kemur, ull mína og hör sem hún hafði til að skýla nekt sinni. 12 Nú bera ég blygðun hennar í augsýn ástmanna hennar og enginn þeirra mun bjarga henni úr greipum mínum. 13 Ég mun binda enda á alla gleði hennar, hátíðir, tunglkomudaga og hvíldardaga og allar hátíðarsamkomur hennar 14 og eyða vínvið hennar og fíkjutré sem hún sagði um: „Þau eru skækjulaun mín sem ástmenn mínir greiddu mér.“ Ég geri garða hennar að kjarri sem villt dýr munu éta. 15 Ég dreg hana til ábyrgðar fyrir hátíðisdaga Baala, þegar hún færði þeim reykelsisfórnir og skreytti sig með nefhring og hálsfesti og elti ástmenn sína en gleymdi mér, segir Drottinn. 16 Þess vegna lokka ég hana nú sjálfur og fer með hana út í eyðimörkina og hughreysti hana. 17 Þá gef ég henni víngarða hennar aftur og geri Mæðudal að Vonarhliði. Þá mun hún svara mér eins og á æskudögum sínum, daginn sem hún hélt upp frá Egyptalandi. Nýr sáttmáli 18 Á þeim degi munt þú, segir Drottinn, ávarpa mig „eiginmaður minn“, og ekki framar kalla til mín „Baal minn“. 19 Ég fjarlægi nöfn Baala úr munni hennar og þeir verða ekki nefndir á nafn framar. 20 Á þeim degi geri ég sáttmála fyrir Ísraelsmenn við dýr merkurinnar og fugla himinsins og skriðdýr jarðarinnar og eyði boga, sverði og stríði úr landinu og læt þá búa óhulta. 21 Ég festi þig mér um alla framtíð, ég festi þig mér í réttlæti, réttvísi, kærleika og miskunnsemi, 22 ég festi þig mér í tryggð, og þú munt þekkja Drottin. 23 Á þeim degi mun ég bænheyra, segir Drottinn, ég mun bænheyra himininn og hann mun bænheyra jörðina 24 og jörðin mun bænheyra kornið, vínið og olíuna, og þau munu bænheyra Jesreel 25 og mín vegna mun ég sá henni í landið. Ég mun sýna Miskunnarvana miskunn og segja við Ekki-lýð-minn: „Þú ert lýður minn,“ og hann mun segja: „Þú ert Guð minn.“ |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society