Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Harmljóðin 2 - Biblían (2007)


Drottinn hegnir Jerúsalem

1 Hvílíkum sorta hefur Drottinn í reiði sinni hulið dótturina Síon. Frá himni varpaði hann til jarðar vegsemd Ísraels og minntist ekki fótskarar sinnar á degi reiði sinnar.

2 Vægðarlaust eyddi Drottinn öllum dvalarstöðum Jakobs, reif niður í bræði sinni vígi Júdadóttur og jafnaði þau við jörðu. Hann svipti ríkið sæmd, og ráðamenn þess.

3 Í brennandi reiði hjó hann af öll horn Ísraels, dró að sér hægri höndina er óvinirnir nálguðust og brann í Jakobi eins og bál sem eyðir öllu umhverfis.

4 Hann spennti boga sinn eins og óvinur, með styrkri hægri hendi, og drap eins og fjandmaður allt sem auganu var yndi í tjaldi dótturinnar Síonar. Hann úthellti heift sinni eins og eldi.

5 Drottinn kom fram sem óvinur, eyddi Ísrael, lagði hallir hans í rúst og braut niður virki hans. Hryggð og harmi olli hann Júdadóttur.

6 Hann gerði tjaldbúð sína að moldarflagi, umturnaði samkomustað sínum. Drottinn lét hvíldardaga og hátíðir gleymast í Síon og útskúfaði í ákafri reiði sinni konungi og prestum.

7 Drottinn hefur hafnað altari sínu, afneitað helgidómi sínum, ofurselt í óvina hendur hallarmúra hennar. Þeir létu óp glymja í musteri Drottins eins og á hátíðardegi.

8 Drottinn hafði ásett sér að eyða múr dótturinnar Síonar. Hann þandi mælisnúru, aftraði ekki hendi sinni frá því að eyða, sló varnarvirki og múr harmi, saman örmagnast þau.

9 Hlið hennar eru sokkin í jörðu, hann ónýtti og braut slagbranda hennar. Konungur hennar og ráðamenn eru meðal heiðingjanna, án leiðsagnar, og spámenn hennar fá engar vitranir frá Drottni.

10 Öldungar dótturinnar Síonar sitja þöglir á jörðinni. Þeir hafa ausið mold yfir höfuð sín, og gyrt sig hærusekk. Meyjar Jerúsalem hneigðu höfuð að jörðu.

11 Augu mín daprast af gráti, ég ólga hið innra og galli mínu er úthellt á jörðina sökum tortímingar dótturinnar, þjóðar minnar, börn og brjóstmylkingar hníga magnþrota niður á strætum borgarinnar.

12 Þau segja við mæður sínar: „Hvar er korn og vín?“ þar sem þau hníga máttvana niður eins og helsárir menn á strætum borgarinnar. Þau gefa upp öndina í faðmi mæðra sinna.

13 Hvernig get ég hughreyst þig, við hvað líkt þér, dóttirin Jerúsalem? Hverju á ég að jafna við þig til að hugga þig, mærin Síonardóttir? Sár þitt er stórt eins og hafið, hver gæti læknað þig?

14 Sýnir spámanna þinna um þig voru tál og blekking. Þeir afhjúpuðu ekki misgjörð þína til þess að snúa við högum þínum heldur birtu þér spár sem voru tál og ginningar.

15 Allir sem fram hjá fara skella saman lófum, fussa og hrista höfuðið yfir dótturinni Jerúsalem: „Er þetta borgin, hin alfagra, yndi gervallrar jarðar?“

16 Allir óvinir þínir glenna upp ginið gegn þér, fussa og gnísta tönnum og segja: „Vér höfum afmáð hana! Þetta er dagurinn langþráði, vér lifðum það að sjá hann!“

17 Drottinn hefur gert það sem hann ásetti sér, látið það rætast sem hann varaði við forðum daga. Vægðarlaust hefur hann rifið niður, látið óvinina hlakka yfir þér og hafið horn fjandmanna þinna.

18 Hrópa hátt til Drottins, þú mærin, dóttir Síonar. Lát tárin renna eins og læk dag og nótt, unn þér engrar hvíldar, lát auga þitt ekki hvílast.

19 Rís á fætur! Kveina um nætur við upphaf hverrar vöku. Úthell hjarta þínu eins og vatni frammi fyrir augliti Drottins, fórna höndum til hans fyrir lífi barna þinna sem hníga niður magnþrota af hungri á öllum gatnamótum.

20 Sjá, Drottinn, og hygg að hvern þú hefur leikið þannig. Eiga konur að eta afkvæmi sín, börnin sem þær bera á örmum? Á að myrða presta og spámenn í helgidómi Drottins?

21 Ungir og aldnir liggja vegnir á strætunum, sveinar og öldungar. Meyjar mínar og æskumenn féllu fyrir sverði. Þú réðst þeim bana á reiðidegi þínum, slátraðir vægðarlaust.

22 Eins og þú kvaddir til hátíða stefndir þú ógnum að mér hvaðanæva. Enginn komst undan og lifði af á reiðidegi Drottins. Þá sem ég bar á örmum og ól önn fyrir hefur óvinur minn afmáð.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ