Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Fyrra Tímóteusarbréf 3 - Biblían (2007)


Um leiðtoga kirkjunnar

1 Það orð er satt. Sækist einhver eftir biskupsstarfi þá girnist hann göfugt hlutverk.

2 Biskup á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, bindindissamur, hóglátur, háttprúður, gestrisinn, góður fræðari,

3 ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, heldur gæfur, ekki deilugjarn, ekki fégjarn.

4 Hann á að vera maður sem veitir góða forstöðu heimili sínu og venur börn sín á hlýðni og alla prúðmennsku.

5 Hvernig má sá sem ekki hefur vit á að veita heimili sínu forstöðu veita söfnuði Guðs umsjón?

6 Hann á ekki að vera nýr í trúnni til þess að hann ofmetnist ekki og verði fyrir sama dómi og djöfullinn.

7 Hann á líka að hafa góðan orðstír hjá þeim sem standa fyrir utan til þess að hann verði ekki fyrir álasi og lendi í tálsnöru djöfulsins.

8 Svo eiga og djáknar að vera heiðvirðir, hreinskilnir, ekki drykkfelldir eða ágjarnir.

9 Þeir skulu varðveita leyndardóm trúarinnar með hreinni samvisku.

10 Einnig þá skal fyrst reyna, síðan takist þeir þjónustuna á hendur ef þeir eru óaðfinnanlegir.

11 Ef konur eru djáknar skulu þær vera heiðvirðar, ekki rógberar, heldur bindindissamar, trúar í öllu.

12 Djáknar séu einkvæntir og hafi góða stjórn á börnum sínum og heimilum.

13 Því að þeir sem hafa staðið sig vel sem djáknar ávinna sér góðan orðstír og mikla djörfung í trúnni á Krist Jesú.

14 Þótt ég vonist til að koma bráðum til þín rita ég þetta

15 til þess að þú skulir vita, ef mér seinkar, hvernig á að haga sér í Guðs húsi. Guðs hús er söfnuður lifanda Guðs, stólpi og grundvöllur sannleikans.

16 Og víst er leyndardómur trúarinnar mikill: Hann birtist í manni, sannaðist í anda, opinber englum, var boðaður þjóðum, trúað í heimi, hafinn upp í dýrð.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ