Amos 9 - Biblían (2007)Fimmta sýn: Drottinn í musterinu 1 Ég sá Drottin standa við altarið og hann sagði: Slá þú á súlnahöfuðið svo að þröskuldarnir skjálfi og byggingin hrynji yfir höfuð þeirra allra. Þá sem eftir verða mun ég fella með sverði. Enginn þeirra sem flýr skal komast undan og sá sem sleppur skal ekki bjargast. 2 Þótt þeir brjótist niður í undirheima mun hönd mín sækja þá og þótt þeir stígi upp í himininn mun ég steypa þeim þaðan ofan, 3 þótt þeir dyljist á tindi Karmelfjalls mun ég leita þá uppi og grípa þá, þótt þeir feli sig fyrir mér á hafsbotni mun ég skipa orminum þar að bíta þá. 4 Þótt þeir fari í útlegð, reknir áfram af fjandmönnum sínum, mun ég skipa sverðinu að drepa þá þar. Ég beini sjónum mínum að þeim, ekki til heilla, heldur til óheilla. 5 Drottinn, Guð hersveitanna, snertir jörðina svo að hún gengur í bylgjum og allir syrgja sem á henni búa. Hún hækkar öll eins og fljót og lækkar síðan aftur eins og fljót Egyptalands. 6 Hann reisir hásal sinn á himni, hefur jörðina sem grunn hvelfingar sinnar. Hann hrópar á hafið og eys því á yfirborð jarðar. Drottinn er nafn hans. Útvalning og dómur 7 Eruð þér Ísraelsmenn mér mætari en Kússítar? spyr Drottinn. Leiddi ég ekki Ísrael frá Egyptalandi, Filistea frá Kaftór, Aramea frá Kír? 8 Augu Drottins Guðs hvíla á þessu synduga konungsríki: Ég mun afmá það af yfirborði jarðar en samt mun ég ekki afmá niðja Jakobs að fullu, segir Drottinn. 9 Nú gef ég sjálfur skipun um að hrista kyn Ísraels saman við allar aðrar þjóðir eins og þegar sigti er hrist, án þess að nokkur steinvala falli til jarðar. 10 Allir syndarar þjóðar minnar munu falla fyrir sverði, allir sem segja: „Þú munt ekki senda oss ógæfuna, þú munt ekki steypa henni yfir oss.“ Fyrirheit um endurreisn 11 Á þeim degi mun ég endurreisa hina föllnu tjaldbúð Davíðs. Ég mun múra upp í sprungurnar og reisa það sem hrunið hefur. Ég mun byggja það aftur eins og það var áður 12 svo að þeir geti endurheimt það sem eftir er af Edóm og allar þjóðir aðrar sem nafn mitt hefur verið nefnt yfir. 13 Já, þeir dagar koma, segir Drottinn, að plógmaðurinn fylgir fast á hæla sláttumannsins og víntroðslumaðurinn á eftir sáðmanninum. Þá mun vínberjasafinn flæða um fjöllin og hæðirnar verða gegnvættar. 14 Þá mun ég snúa við högum þjóðar minnar, Ísraels. Þeir munu endurreisa hinar eyddu borgir og búa í þeim, þeir munu planta víngarða og drekka vín úr þeim, gera aldingarða og neyta ávaxta þeirra. 15 Ég mun gróðursetja þá í eigin jarðvegi og þeir skulu aldrei framar verða upprættir úr gróðurmoldinni sem ég gaf þeim, segir Drottinn, Guð þinn. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society