Amos 8 - Biblían (2007)Fjórða sýn: Ávaxtakarfa 1 Drottinn Guð birti mér í sýn: Sjáðu, þarna er karfa með sumarávöxtum. 2 Hann spurði: „Hvað sérðu, Amos?“ Ég svaraði: „Körfu með sumarávöxtum.“ Þá sagði Drottinn við mig: „Endalokin eru komin yfir lýð minn, Ísrael, ég mun ekki láta hann afskiptalausan framar. 3 Söngkonur hallarinnar munu kveina á þeim degi,“ segir Drottinn, Guð minn: „Fjöldi líka liggur á víð og dreif. Hafið hljótt.“ Okrurum refsað 4 Heyrið þetta, þér sem troðið fátæklingana niður og gerið út af við þurfamenn í landinu. 5 Þér sem spyrjið: „Hvenær tekur tunglkomuhátíðin enda svo að vér getum haldið áfram að selja korn? Hvenær líður hvíldardagurinn hjá? Vér viljum geta opnað kornhlöðurnar. Vér ætlum að minnka kornmálið, hækka verðið og falsa vogina. 6 Þá getum vér keypt hina umkomulausu fyrir silfur og fátæklinginn fyrir eina ilskó. Það er úrgangskorn sem vér seljum.“ 7 Drottinn hefur svarið við stolt Jakobs: Aldrei nokkru sinni mun ég gleyma verkum þeirra. 8 Hlýtur ekki öll jörðin að skjálfa vegna þess og allir sem á henni búa að syrgja? Hlýtur hún ekki að vaxa eins og fljót, bólgna og réna síðan aftur, eins og fljót Egyptalands? Dómsdagur 9 Á þeim degi, segir Drottinn Guð, mun ég láta sólina ganga til viðar um hádegi og myrkva landið um hábjartan dag. 10 Ég mun snúa hátíðum yðar í sorgarathafnir, breyta lofsöngvum yðar í harmljóð. Ég mun gyrða allar lendar með hærusekk og krúnuraka hvert höfuð. Ég mun færa landinu sorg eins og sorg eftir einbirni, endalokin verða eins og hinn bitri dagur dauðans. 11 Sjá, þeir dagar koma, segir Drottinn Guð, að ég sendi hungur til landsins, hvorki hungur eftir brauði né þorsta eftir vatni, heldur eftir orði Drottins. 12 Þá munu menn reika frá einu hafi til annars, flakka frá norðri til austurs og leita að orði Drottins en þeir munu ekki finna það. 13 Á þeim degi verða fríðar ungmeyjar og æskumenn örmagna af þorsta. 14 Þeir sem sverja við syndarsekt Samaríu og segja: „Svo sannarlega sem Guð þinn lifir, Dan,“ og: „Svo sannarlega sem Guð Beerseba lifir.“ Þeir munu falla og aldrei rísa upp aftur. |
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007
Icelandic Bible Society