Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -

Amos 3 - Biblían (2007)


Útvalning og ábyrgð

1 Heyrið þetta orð sem Drottinn talaði gegn yður, Ísraelsmenn, og gegn öllum þeim kynstofni sem ég leiddi út af Egyptalandi:

2 Af öllum kynstofnum jarðar hef ég aðeins valið yður. Þess vegna kalla ég yður til ábyrgðar fyrir öll afbrot yðar.

3 Verða tveir menn samferða nema þeir hafi áður mælt sér mót?

4 Öskrar ljón í skóginum hafi það enga bráð? Grenjar ljónshvolpur í bæli sínu nema hann hafi engu náð?

5 Fellur fugl til jarðar hafi enginn hæft hann? Hrekkur gildra í lás á jörðinni nema eitthvað hafi í hana komið?

6 Verður hafurshornið þeytt í einhverri borg án þess að íbúarnir óttist? Kemur böl yfir borg hafi Drottinn ekki komið því til leiðar?

7 Því að Drottinn Guð gerir ekkert án þess að opinbera fyrirætlun sína fyrir þjónum sínum, spámönnunum.

8 Ljónið öskrar − hver óttast ekki? Drottinn Guð talar − hver spáir ekki?


Dómur yfir Samaríu

9 Kallið út yfir hallirnar í Asdód og hallirnar í Egyptalandi og segið: Safnist saman á fjöllunum við Samaríu og sjáið sundrungina í borginni og ofbeldið sem þar er framið.

10 Íbúarnir kunna ekki að gera það sem rétt er, hefur Drottinn sagt. Þeir safna auði í hallir sínar með ofbeldi og yfirgangi.

11 Þess vegna segir Drottinn Guð: Fjandmenn munu umkringja landið, þeir munu brjóta niður varnir þínar og hallir þínar verða rændar.

12 Svo segir Drottinn: Líkt og þegar hirðir bjargar tveimur leggjum eða snepli af eyra úr gini ljónsins munu Ísraelsmenn sem búa í Samaríu bjargast, aðeins með fótagafl af rúmi og höfðagafl af bekk.

13 Hlustið og vitnið um þetta gegn ætt Jakobs, segir Drottinn Guð hersveitanna:

14 Já, daginn sem ég kalla Ísraelsmenn til ábyrgðar fyrir glæpi sína mun ég senda hegninguna yfir ölturu í Betel. Altarishornin verða höggvin af, þau munu falla til jarðar.

15 Þá brýt ég niður vetrarhúsið og sumarhúsið, fílabeinshúsin verða jöfnuð við jörðu og hin stóru hús munu hverfa, segir Drottinn.

Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007 

Icelandic Bible Society
ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:



ကြော်ငြာတွေ