Davíð hugsaði með sér: “Salómon sonur minn er ungur og óþroskaður, en musterið, er Drottni á að reisa, á að vera afar stórt, til frægðar og prýði um öll lönd. Ég ætla því að viða að til þess.” Og Davíð viðaði afar miklu að fyrir andlát sitt.
Davíð konungur mælti til alls safnaðarins: “Salómon sonur minn, hinn eini, er Guð hefir kjörið, er ungur og óreyndur, en starfið er mikið, því að eigi er musteri þetta manni ætlað, heldur Drottni Guði.
En yfir Davíðs hús og yfir Jerúsalembúa úthelli ég líknar- og bænaranda, og þeir munu líta til mín, til hans, sem þeir lögðu í gegn, og harma hann eins og menn harma lát einkasonar, og syrgja hann eins og menn syrgja frumgetinn son.