3 já, ef þú kallar á skynsemina og hrópar á hyggindin,
Veiti Drottinn þér aðeins hyggindi og skilning og skipi þig yfir Ísrael, og að þú megir varðveita lögmál Drottins, Guðs þíns.
Ég er þjónn þinn, veit mér skyn, að ég megi þekkja reglur þínar.
Ó að hróp mitt mætti nálgast auglit þitt, Drottinn, veit mér að skynja í samræmi við orð þitt.
Veit mér skyn, að ég megi halda lögmál þitt og varðveita það af öllu hjarta.
Hendur þínar hafa gjört mig og skapað, veit mér skyn, að ég megi læra boð þín.
svo að þú ljáir spekinni athygli þína, hneigir hjarta þitt að hyggindum,
ef þú leitar að þeim sem að silfri og grefst eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum,
Mundu til hans á öllum þínum vegum, þá mun hann gjöra stigu þína slétta.
Heyrið, synir, áminning föður yðar og hlýðið til, svo að þér lærið hyggindi!
Ég elska þá sem mig elska, og þeir sem leita mín, finna mig.
Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðirinn himneski gefa þeim heilagan anda, sem biðja hann.”
Ef einhvern yðar brestur visku, þá biðji hann Guð, sem gefur öllum örlátlega og átölulaust, og honum mun gefast.