26 Eins og líkaminn er dauður án anda, eins er og trúin dauð án verka.
Þú byrgir auglit þitt, þá skelfast þau, þú tekur aftur anda þeirra, þá andast þau og hverfa aftur til moldarinnar.
Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu, á þeim degi verða áform þeirra að engu.
og moldin hverfur aftur til jarðarinnar, þar sem hún áður var, og andinn til Guðs, sem gaf hann.
Hættið að treysta mönnum, hverfulan lífsanda hafa þeir í nösum sér. Hvers virði eru þeir?
Þá kallaði Jesús hárri röddu: “Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn!” Og er hann hafði þetta mælt, gaf hann upp andann.
Í Kristi Jesú er ekkert komið undir umskurn né yfirhúð, heldur undir trú, sem starfar í kærleika.
Hvað stoðar það, bræður mínir, þótt einhver segist hafa trú, en hefur eigi verk? Mun trúin geta frelsað hann?
Eins er líka trúin dauð í sjálfri sér, vanti hana verkin.
Fávísi maður! Vilt þú láta þér skiljast, að trúin er ónýt án verkanna?