Þegar faríseinn, sem honum hafði boðið, sá þetta, sagði hann við sjálfan sig: “Væri þetta spámaður, mundi hann vita, hver og hvílík sú kona er, sem snertir hann, að hún er bersyndug.”
Fagnaðarerindi vort kom eigi til yðar í orðum einum, heldur einnig í krafti og í heilögum anda og með fullkominni sannfæringu. Þér vitið, hvernig vér komum fram hjá yður, yðar vegna.
En sá sem skyggnist inn í hið fullkomna lögmál frelsisins og heldur sér við það og gleymir ekki því, sem hann heyrir, heldur framkvæmir það, hann mun sæll verða í verkum sínum.
Síðan sagði hann við Seba og Salmúna: “Hvernig voru þeir menn í hátt, er þið drápuð hjá Tabor?” Þeir sögðu: “Þeir voru alveg eins og þú. Voru þeir allir slíkir ásýndum sem væru þeir konungssynir.”