Biblia Todo Logo
အွန်လိုင်း သမ္မာကျမ်းစာ

- ကြော်ငြာတွေ -




Jakobsbréfið 1:22 - Biblían (1981)

22 Verðið gjörendur orðsins og eigi aðeins heyrendur þess, ella svíkið þér sjálfa yður.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ

Biblían (2007)

22 Verðið gerendur orðsins og eigi aðeins heyrendur þess, ella svíkið þið sjálf ykkur.

အခန်းကိုကြည့်ပါ။ ကော်ပီ




Jakobsbréfið 1:22
31 ပူးပေါင်းရင်းမြစ်များ  

Þann mann, er sækist eftir ösku, hefir táldregið hjarta leitt afvega, svo að hann fær eigi borgið lífi sínu. Hann segir ekki við sjálfan sig: “Er það ekki svikatál, sem ég held á í hægri hendi minni?”


Þá sagði Drottinn við mig: Boða þú öll þessi orð í Júdaborgum og á Jerúsalemstrætum og seg: Hlýðið á orð þessa sáttmála og breytið eftir þeim.


Hroki hjarta þíns hefir dregið þig á tálar, þú sem átt byggð í klettaskorum og situr í hæðum uppi, sem segir í hjarta þínu: “Hver getur steypt mér niður til jarðar?”


Hver sem gjörir vilja föður míns, sem er á himnum, sá er bróðir minn, systir og móðir.”


og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.”


Hann sagði: “Já, því sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það.”


Þér vitið þetta, og þér eruð sælir, ef þér breytið eftir því.


Og ekki eru heyrendur lögmálsins réttlátir fyrir Guði, heldur munu gjörendur lögmálsins réttlættir verða.


Villist ekki. Vondur félagsskapur spillir góðum siðum.


Enginn dragi sjálfan sig á tálar. Ef nokkur þykist vitur yðar á meðal í þessum heimi, verði hann fyrst heimskur til þess að hann verði vitur.


Vitið þér ekki, að ranglátir munu ekki Guðs ríki erfa? Villist ekki! Hvorki munu saurlífismenn né skurðgoðadýrkendur, hórkarlar né kynvillingar,


Sá sem þykist vera nokkuð, en er þó ekkert, dregur sjálfan sig á tálar.


Villist ekki! Guð lætur ekki að sér hæða. Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera.


Að endingu, bræður, allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dyggð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það.


Hvað sem þér gjörið í orði eða verki, gjörið það allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður fyrir hann.


En vondir menn og svikarar munu magnast í vonskunni, villandi aðra og villuráfandi sjálfir.


Því að þeir voru tímarnir, að vér vorum einnig óskynsamir, óhlýðnir, villuráfandi, í ánauð hvers konar fýsna og lostasemda. Vér ólum aldur vorn í illsku og öfund, vorum andstyggilegir, hötuðum hver annan.


Sá sem þykist vera guðrækinn, en hefur ekki taumhald á tungu sinni, blekkir sjálfan sig og guðrækni hans er fánýt.


Talið ekki illa hver um annan, bræður. Sá sem talar illa um bróður sinn eða dæmir bróður sinn, talar illa um lögmálið og dæmir lögmálið. En ef þú dæmir lögmálið, þá ert þú ekki gjörandi lögmálsins, heldur dómari.


Hver sem því hefur vit á gott að gjöra, en gjörir það ekki, hann drýgir synd.


og bera þannig úr býtum laun ranglætis. Þeir hafa yndi af að svalla um miðjan dag. Þeir eru skömm og smán, þegar þeir neyta máltíða með yður og svalla.


Ef vér segjum: “Vér höfum ekki synd,” þá svíkjum vér sjálfa oss og sannleikurinn er ekki í oss.


Og á því vitum vér, að vér þekkjum hann, ef vér höldum boðorð hans.


Börnin mín, látið engan villa yður. Sá sem iðkar réttlætið er réttlátur, eins og Kristur er réttlátur.


Breyttu ekki eftir því, sem illt er, minn elskaði, heldur eftir því, sem gott er. Sá sem gott gjörir heyrir Guði til, en sá sem illt gjörir hefur ekki séð Guð.


Og drekanum mikla var varpað niður, hinum gamla höggormi, sem heitir djöfull og Satan, honum sem afvegaleiðir alla heimsbyggðina, honum var varpað niður á jörðina, og englum hans var varpað niður með honum.


Sjá, ég kem skjótt. Sæll er sá, sem varðveitir spádómsorð þessarar bókar.”


ကြှနျုပျတို့နောကျလိုကျပါ:

ကြော်ငြာတွေ


ကြော်ငြာတွေ