En svo leit ég á öll verk mín, þau sem hendur mínar höfðu unnið, og á þá fyrirhöfn er ég hafði haft af þeim og þá sá ég að allt var það hégómi og eftirsókn eftir vindi og að enginn ávinningur er til undir sólinni.
Og ég sagði við sjálfan mig: Það sem kemur fyrir heimskingjann kemur einnig fram við mig og til hvers hef ég þá orðið svo frábærlega vitur? Þá fann ég í hjarta mínu að einnig það var hégómi.
Hver veit hvort hann verður spekingur eða heimskingi? Þó á hann að ráða yfir öllu því erfiði sem ég hef stritast við og farið viturlega með undir sólinni. Einnig það er hégómi.
Hafi einhver unnið starf sitt af hyggindum, þekkingu og dugnaði verður hann að selja það öðrum í hendur sem ekkert hefur fyrir því haft. Einnig það er hégómi og mikið böl.
Þeim manni, sem honum geðjast, gefur hann speki, þekkingu og gleði en hinn rangláta lætur hann safna og hrúga saman hlutum til að selja þá í hendur þeim sem Guði geðjast. Einnig það er hégómi og eftirsókn eftir vindi.
Því að örlög manns og örlög skepnu eru hin sömu: Eins og skepnan deyr, svo deyr og maðurinn og allt hefur sama andann og yfirburði hefur maðurinn enga fram yfir skepnuna því að allt er hégómi.
Enginn endir var á öllu því fólki, á öllum þeim sem hann stjórnaði. En afkomendur hans glöddust ekki yfir honum. Einnig það er hégómi og eftirsókn eftir vindi.
Maður stendur einn og enginn annar með honum, hann á hvorki son né bróður og þó er enginn endir á öllu striti hans og auðurinn mettar ekki augu hans. Fyrir hvern er ég þá að stritast og fyrir hvern læt ég þá sjálfan mig fara góðs á mis? Einnig þetta er hégómi og leið þraut.