Höggormurinn var slóttugri en öll dýr merkurinnar sem Drottinn Guð hafði gert. Hann sagði við konuna: „Er það satt að Guð hafi sagt: Þið megið ekki eta af neinu tré í aldingarðinum?“
Þegar Jóram kom auga á Jehú sagði hann: „Kemur þú með friði, Jehú?“ Hann svaraði: „Hvernig get ég komið með friði á meðan Jesebel, móðir þín, hórast með hjáguðum og leggur stund á alls konar galdra?“
En þú sem ert ofurseld eyðingunni, hvað gerir þú? Hvernig getur þú klæðst skarlati, skreytt þig með gullskarti og farðað augu þín? Þú fegrar þig til einskis. Þeir sem girntust þig snúa við þér baki, þeir sitja um líf þitt.