3 Hunang drýpur af vörum framandi konu og munnur hennar er hálli en olía.
3 Því að hunangsseimur drýpur af vörum lauslátrar konu, og gómur hennar er hálli en olía.
Fyrrum félagi minn lagði hendur á vini sína, rauf sáttmálann sem hann hafði gert.
til að frelsa þig frá léttúðardrós og blíðmælgi hinnar framandi konu
Djúp gröf er munnur framandi kvenna, sá sem verður fyrir reiði Drottins fellur í hana.
Hví skyldir þú, sonur minn, láta aðra konu töfra þig og taka framandi konu í faðm þér?
því að þær varðveita þig fyrir vondri konu, fyrir hálli tungu framandi konu.
Hún tælir hann með fortölum og ginnir hann með blíðmælgi.
svo að þær varðveiti þig fyrir hinni framandi konu, hinni blíðmálgu konu.
Og ég fann að konan er biturri en dauðinn því að hún er net og hjarta hennar snara, hendur hennar fjötrar. Sá sem Guði þóknast kemst undan henni en syndarinn verður fanginn af henni.
Hunang drýpur af vörum þínum, brúður, hunang og mjólk undir tungu þinni og ilmur klæða þinna er sem angan Líbanonsfjalls.